Valborg fasteignasala kynnir bjarta og fallega íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli með lyftu. Aðeins eru tvær íbúðir á hverri hæð með gluggum á þrjá vegu en íbúðirnar ná í gegn. Hverri íbúð fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu. Gólfsíðir gluggar njóta sín vel þar sem gólfhiti er í íbúðinni og engir ofnar se... Sýna meira
Valborg fasteignasala kynnir bjarta og fallega íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli með lyftu. Aðeins eru tvær íbúðir á hverri hæð með gluggum á þrjá vegu en íbúðirnar ná í gegn. Hverri íbúð fylgir stæði í lokaðri bílgeymslu. Gólfsíðir gluggar njóta sín vel þar sem gólfhiti er í íbúðinni og engir ofnar sem hindra sýn. Staðsetning er einstaklega góð en aðeins eru 100 metrar í Helgafellsskóla sem er bæði með leik- og grunnskóladeild. Einnig er íþróttahús handan götunnar.Opið hús verður fimmtudaginn 19. september 2024 kl. 17:00 - 17:30.Íbúðin er skráð 132,1 m² og fylgir íbúðinni 45,6 m² suðurverönd. Íbúðin er 4ra herbergja auk rúmgóðs fjölskyldurýmis (sem gæti talist 5. herbergið) ásamt geymslu og þvottahúss innan íbúðar. Birt stærð íbúðar skv. FMR er 132,1 m² en eigninni tilheyrir einnig geymsla í kjallara merkt 0001, birt stærð 7,3 m² auk stæðis í bílakjallara merkt 03 B-19.Skipulag: Komið er inn í anddyri sem er hluti af opnu rými sem samanstendur af stofu og eldhúsi. Á hægri hönd er gangur með skápum og fatahengi.Á ganginum er fyrst gengið inn í þvotthús innan íbúðar. Því næst er baðherbergi, þrjú rúmgóð svefnhergi, öll með fataskápum auk rúmgóðs fjölskyldurýmis. Í opna rýminu er stofa/borðstofa og eldhús. Eldhús er með hvítri innréttingu og eyju. Eldhús er opið inn í rúmgóða stofu og borðstofu með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er útgengt á stóra suðurverönd sem er með gleri til að sýna óhindrað útsýni.Á gólfum er harðparket frá Parka, að frátöldum votrýmum þar sem á eru flísar. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og herbergjum eru frá framleiðandanum GKS. Gólfhiti er í íbúðinni. Stjórntæki er tengt gólfhitakerfi og þráðlaus skynjari við hverja hurð. Sameign og lóð eru snyrtileg. Í húsinu eru tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur. Húsið er steinsteypt og eru útveggir einangraðir að utan og klæddir með álklæðningu og timbri.Húsið stendur handan götunnar við nýjan leik- og grunnskóla, Helgafellsskóla og íþróttahús. Frábært útsýni er úr öllum íbúðum. Stutt er í ósnortna náttúru Helgafellsins sem og Álafosskvosina sem er ein af perlum Mosfellsbæjar. Nánari lýsing:Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting, eyja með miklu skápaplássi.Stofa: Björt með góðum gluggum og útgangi á suðurverönd með útsýni.Þvottahús: Með glugga og tengi fyrir þvottavél og þurrkaraBaðherbergi: Rúmgott og flísalagt. Walk-in sturta.Svefnherbergi 1: Rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi 2: Rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.Sjónvarpshol: Með parketi á gólfi.Hjónaherbergi: Rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.Gangur: Skápar og fatahengi.Geymsla í kjallara: 7,3 m²Gólfhiti er í allri íbúðinni.Sameign snyrtileg.Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veita Þyrí Guðjónsdóttir, viðskiptafr. - löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur .Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.