Kjöreign fasteignasala kynnir: Geitland 8, rúmgóð og velskipulögð mikið endurnýjuð 4-5 herbergja 123,4 fm íbúð á efstu hæð (ein og hálf hæð upp frá inngangi), ásamt 20,8 fm bílskúr og tvennum svölum eða alls 144,2 fm í litlu fjölbýli innst í lokaðri götu. Komið er inn í
forstofu, parket á gólfi og góðir fataskápar. Eldhús er með nýlegri falllegri innréttingu og tækjum,falleg eyja sem skilur að eldhús og borðstofu. Sér þvottahús og búr er innaf eldhúsi. Opnanlegur gluggi. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfum, útgengt á stórar og skjólgóðar svalir með glæsilegu útsýni sem snúa í suður.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi, góðir fataskápar, útgengt út á svalir sem snúa í norðaustur.
2 barnaherbergi með parketi á gólfum. Skápar eru á svefnherbergisgangi. Baðherbergið er með sturtubaði ágætis innréttingu og opnanlegum glugga. Íbúðinni fylgja skápar sem eru á stigapalli og sérgeymsla sem er á jarðhæð hússins. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig á jarðhæð hússins.
Eigninni fylgir bílskúr í bílskúralengju neðan við húsið.. Bílskúrinn er með hita og rafmagni.
Endurbætur á íbúð: árið 2022 var eldhúsið endurnýjað, ný innrétting og ný eldhústæki. Sama ár var skipt um gólfefni á íbúðinni nema á baði og þvottahúsi.
Endurbætur utanhúss:
2026- viðhald á þaki og þakið málað.
2023 - Þak á bílskúralengju yfirfarið og viðgert eftir þörfum. Einnig var endurnýjað dyrasímakerfið í húsinu.
2022 - Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2022.
2022 - Gluggar yfirfarnir og skipt um þá sem voru komnir á tíma.
2014 - Skólplagnir undir húsinu endurnýjaðar.
2017 - Drenað norðan hússins og meðfram gafli.
2017 - Hellulagt og snjóbræðsla lögð fyrir ofan hús.
Árin 2012 og 2013 var skipt um járn á þaki og frárennslisrennur
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is