NÝTT Í SÖLU - GEITLAND 8. FOSSVOGI. 4-5.HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2.HÆÐ (EFSTU) + BÍLSKÚR. FALLEGT ÚTSÝNI. Opið hús Sunnudaginn 13.febrúar 2022, kl. 13.00 - 14,00 Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S: 896-5222 ! MUNIÐ SÓTTVARNIR ! Ath. Eignin verður ekki seld fyrr en eftir opna húsið. ... Sýna meira
NÝTT Í SÖLU - GEITLAND 8. FOSSVOGI. 4-5.HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2.HÆÐ (EFSTU) + BÍLSKÚR. FALLEGT ÚTSÝNI. Opið hús Sunnudaginn 13.febrúar 2022, kl. 13.00 - 14,00 Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S: 896-5222 ! MUNIÐ SÓTTVARNIR ! Ath. Eignin verður ekki seld fyrr en eftir opna húsið. Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477, og Ingólfur Gissurarson lg.fs. síðan 1989, S:896-5222, kynnir: Rúmgóð og velskipulögð 4-5 herbergja 123,4 fm íbúð á efstu hæð (ein og hálf hæð upp frá inngangi), ásamt 20,8 fm bílskúr eða alls 144,2 fm í litlu fjölbýli innst í lokaðri götu nokkur skref frá Grímsbæ í Fossvogi. Íbúðin er í UPPRUNALEGU ástandi að innan og þarfnast ENDURNÝJUNAR. Samþykkt hefur verið á vegum húsfélagsins að fara í viðgerðir og málun á húsinu að utan og er það í undirbúningi (verið að athuga með tilboð). Þarf nýr eigandi að taka endanlegar ákvarðanir um þær með húsfélaginu þegar að því kemur og greiða hlutdeild íbúðarinnar í þeim. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. LÝSING Á EIGNINNI: Skápar á stigapalli framan við íbúðina. Nýleg eldvarnarhurð í íbúðina af stigapalli. Forstofa með skápum. Hol. Eldhús með borðkrók, upprunaleg rennihurða harðplastklædd innrétting. Innaf eldhúsi er þvottaherbergi með glugga og vaski og innaf því er búr/geymsla með hillum. Rúmgóð borðstofa við hlið eldhúsins og svo rúmgóð stofa með útgengt á góðar suður svalir. Fallegt útsýni yfir Fossvoginn, Kópavoginn, Bláfjöll og fl. 3 góð svefnherbergi, skápar í tveimur þeirra. Útgengt úr hjónaherberginu útá norður svalir. Baðherbergi flísalagt með baðkari, innréttingu og glugga. Sér geymsla á jarðhæðinni. Sameiginlegt þvottaherbergi og hjólageymsla á jarðhæðinni. Bílskúr í bílskúralengju sunnan við húsið (áttundi frá vinstri) með rafmagni og frekar nýlegri hurð. Opið á milli tveggja bílskúra og er heitur ofn í skúrnum við hliðina og kalt vatn. Sérhiti og sér rafmagn fyrir íbúðina. GÓLFEFNI: Gólfefni eru flest ónýt og þarfnast endurnýjunar. Teppi á holi, stofu og einu herbergi. Parket á forstofu, eldhúsi og borðstofu. Dúkur á tveimur herbergjum, þvottaherbergi og búri. Flísar á baðgólfi. HÚSSJÓÐUR: 5000 pr.mán. og 10.000.- pr.mán í framkvæmdasjóð (inneign íbúðar ca 150 þ.)ANNAÐ: Fyrirhugaðar eru viðgerðir á húsinu að utan og málun. Verið að vinna í að skoða hvað þarf að gera og fá tilboð. Kostnaður liggur ekki fyrir en búast má við 1,5 - 2,0 millj. á íbúð skv, húsfélagsformanni. Samkvæmt upplýsingum frá seljendum eru nýlegir gluggar+gler í þvottaherbergi og borðstofu. Þarf að laga glugga í stofu eða skipta um.Framkvæmdir á undanförnum árum: Drenað fyrir ofan hús árið 2017. Hellulagt og snjóbræðsla lögð fyrir ofan hús 2017. Hellulagt og snjóbræðsla lögð fyrir neðan hús 2020. Árin 2012 og 2013 var skipt um járn á þaki og frárennslisrennur.SAMANTEKT= ÍBÚÐIN, BÍLSKÚR OG HÚSIÐ ERU SELD Í NÚVERANDI ÁSTANDI. YFIRLÝSING HÚSFÉLAGS LIGGUR FYRIR OG FRAMKVÆMDIR UTANHÚS FRAMMUNDAN. ÍBÚÐIN ÞARFNAST ENDURNÝJUNAR AÐ INNAN. Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali S: 896-5222 eða Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 32 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 896-5222. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - SÉRFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO 2015 til 2021, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2021.