RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Bjarta og fallega 4ra herbergja endaíbúð á besta stað við Furugrund 79, Kópavogi. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 98,7 fm auk geymslu í kjallara sem ekki er talin inn í fermetrafjölda íbúðarinnar.
Eignin er á frábærum stað við Fossvogsdalinn. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla, matvörubúð og íþróttasvæði.Nánari lýsing:Forstofa: Með góðum innbyggðum fataskáp, flísum á gólfi og fínu plássi fyrir fatahengi og skóhirslu.
Eldhús: Innréttingin er dökkgrá, með ljósri borðplötu. Gott skápa- og vinnupláss með góðri lýsingu. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Span helluborð og nýlegur bakaraofn. Góður borðkrókur er í eldhúsi. Stór gluggi með opnanlegu fagi gerir rýmið einstaklega bjart. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi með góðri borðplötu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útdraganlegar snúrur. Opnanlegur gluggi er á þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Borðstofa/Stofa: Eru samliggjandi, bjart og rúmgott rými. Þar eru gluggar á tvo vegu ásamt útgengi á góðar svalir í vestur. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og hvítri innréttingu með handlaug. Góður speglaskápur er á vegg fyrir ofan handlaug. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II & III: Eru með nýlegum fataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla: með hillum er í kjallara og er ekki inni í fermetratölu íbúðarinnar.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk þurrkaðstöðu er í sameign.
Framkvæmdir síðustu ár:- 2024: Skipt um glugga á austur- og suðurhlið
- 2022: Skipt um hurðir í sorpgeymslu og hjólageymslu.
- 2018: Skipt um rennur á austurhlið. Drenlögn endurnýjuð á austur- og suðurhlið. Hiti lagður í stétt.
- 2012: Húsið málað að utan og skipt um hluta af gluggum.
Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða s. 899-8811