Guðrún Antonsdóttir fasteignasali og Lind fasteignasala kynna vel skipulagða 3ja herbergja ENDAíbúð á 3.hæð (efsta hæð). Suð-vestur svalir og sér merkt bílastæði fyrir framan hús.Húsið er nýlega 2024/2025 búin með
hefðbundið viðhald. Ekkert stendur til að gera fyrir húsið, samkvæmt yfirlýsingu húsfélags.
* múrað og málað að utan,
* málað og vatnsvarðar svalir.
* Skipt um glugga sem þótti þörf á
* Þak var endurnýjað að hluta 2019
Frábær staðsetning neðst í Fossvoginum við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla. Í Fossvoginum eru hjóla- og göngustígar, leiksvæði, strandblakvellir og frispígolf. Frábært til útivistar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali s. 621-2020 eða tölvupóst gudrun@garun.isEignin skiptist í forstofuhol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu í sameign. Eignin er skráð hjá HMS 68,4 m2 og ca mæling á geymslu er 6,3m2 er ekki skáð nema í eignaskipayfirlýsingu, áætlaðir fermetrar hafa verið bætt við uppgefna fermetra í auglýsingu eignar.
Nánari lýsing:
Forstofan/hol er rúmgótt með yfirhafnaskáp, gengið er inn í allar vistarverur íbúðar frá holi.
Eldhús með endurnýjaðri hvítri eldhúsinnrétting á tveimur veggjum. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð og vifta. Aðstaða er fyrir uppþvottavél og þvottavél. Innbyggður ísskápur og frystir. Rýmið er bjart með góðum glugga.
Svefnherbergin eru tvö.Hjónaherbergi er með hvítum innfelldum fataskáp á heilum vegg.
Minna herbergið er með harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er með gluggum á tvo vegu. Skjólgóðar svalir. Sólin skín inn á svalir frá ca eitt og fram á kvöld.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með ljósri innréttingu. Veggfestur spegill.Stór innangeng sturta, handklæðaofn og upphengt salerni og opnanlegur gluggi. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta.
Geymsla er í kjallara. Gluggi er á því rými og innstungur. Sameiginleg salernis aðstaða er í sameign staðsett við hlið geymslu.
Þvottahús er í sameign í kjallara. Tvær þvottavélar og tveir þurrkarar í eigu húsfélags.
Hjólageymsla er í sameign í kjallara.
Sér merkt
bílastæði er fyrir framan hús. Stæði merkt 3D.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is