Miklaborg kynnir: Fallega og vel skipulagða 3ja - 4ra herbergja íbúð á annarri hæð við Flúðasel 61 í 109 Reykjavík. Eignin er upprunalega 4ra herbergja en búið er að sameina tvö barnaherbergi í eitt fataherbergi. Mjög auðvelt er að breyta skipulagi til baka. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Eignin er skráð samtals 96,5 fm, þar af er geymsla í kjallara 4,9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi, hjónaherbergi og stór fataherbergi þar sem búið er að sameina tvö barnaherbergi. Útgengt út á svalir frá stofu. Sérgeymsla í kjallara og sérmerkt bílastæði í bílageymslu. Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2018. Eldhúsið og baðherbergið var endurnýjað og skipt var um gólfefni.
Anddyri: Fataskápar og parket á gólfi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting og lítill borðkrókur í enda. Búið er að koma fyrir þvottavél og þurrkara við enda eldhúsinnréttingar. Eldhús var endurnýjað 2018. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Nýleg innrétting. Speglaskápur fyrir ofan skolvask. Sturta og WC. Baðherbergi var endurnýjað 2018 og baðinnrétting endurnýjuð 2025. Flísar á gólfi og í kringum sturtu.
Stofa / Borðstofa: Samliggjandi stofa og borðstofa í alrými. Parket á gólfi og útgengt út á svalir frá stofu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Fataherbergi: Fataherbergið er upprunalega tvö barnaherbergi. Auðvelt er að breyta til baka. Mikið skápapláss og einnig rými fyrir svefnsófa eða aukarúm fyrir gesti. Parket á gólfi.
Sameign: Í kjallara er sérgeymsla 4,9 fm að stærð. Í sameiginlegri bílageymslu er sérmerkt stæði. Skipt var um stofuglugga og svalahurð árið 2025 og húsið málað að utan.
Vel skipulögð eign sem auðvelt er að breyta í 4ra herbergja íbúð aftur. Stutt í alla þjónustu og skóla. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótt eftir kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu
























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 31.05.2026 Nánar | 96,5 m² | 724.352 kr. | 69.900.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 12. apríl 2022 | 59.000.000 kr. |
| 2. júlí 2018 | 37.000.000 kr. |
| 30. október 2014 | 23.900.000 kr. |
| 4 | 96,50 m² | 69.900.000 kr. 31. maí 2026 | 59.000.000 kr. 12. apríl 2022 |
| - | - | - | - - |
| - | - | - | 41.800.000 kr. 8. janúar 2020 |
| 5 | 109,40 m² | 72.900.000 kr. 16. ágúst 2025 | 72.900.000 kr. 3. september 2025 |
| 5 | 109,40 m² | 68.800.000 kr. 26. apríl 2024 | 53.000.000 kr. 14. október 2021 |
| 4 | 97,30 m² | 67.900.000 kr. 20. janúar 2026 | 66.000.000 kr. 25. mars 2026 |
| 3 | 96,10 m² | 57.900.000 kr. 24. október 2026 | 33.000.000 kr. 22. október 2019 |