Domusnova fasteignasala og Árni Helgason lgfs hafa fengið í einkasölu einkar fallegt raðhús sem hefur verið talsvert endurnýjað að utan og innan á síðustu árum. Björt og falleg eign sem er vel staðsett, stutt í leiðir útúr bænum sem og í verslanir, skóla, leikskóla og aðra þjónustu. Frábær fjölskyldueign.
Vinsamlega athugið að bóka þarf skoðun með því að senda póst á arni@domusnova.is Aðkoma að raðhúsinu er frá góðu bílaplani sem rúmar tvo bíla, auk þess er eitt einkastæði á sameiginlegu bílastæði Fljótasels 2-18. Gengið er inn í forstofu á fyrstu hæð. Þaðan er innangengt í bílskúr. Á fyrstu hæð er forstofuherbergi, lítið baðherbergi með sturtu, eitt lítið svefnherbergi og annað stærra. Gengið út í sólríkan garð.
Á annarri hæð eru samliggjandi borðstofa og stofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa í suðvestur. Stórt, bjart og fallegt eldhús og inn af því þvottahús með góðri innréttingu. Á hæðinni er gestasnyrting.
Á þriðju hæð er hjónaherbergi, þar sem útgengt er á svalir til suðvesturs, og stórt svefnherbergi sem hægt er að skipta í tvö minni. Á hæðinni er baðherbergi með sturtu og baðkari. Hér er einnig alrými undir súð, sem notað er sem sjónvarpsstofa og vinnuaðstaða, sem ekki telst með til fermetrafjölda.
Góður garður til suðvestur, sem nýtur sólar frá hádegi fram á kvöld. Mjög falleg og rúmgóð eign.
Smellið
hér til að fá sent söluyfirlit.
1.hæðForstofa með flísum á gólfi.
Innangengt í
bílskúr.
Herbergi/skrifstofa með parketi á gólfi.
Gangur með góðu fatahengi, flísar á gólfi.
Tvö
herbergi með parketi á gólfi. Tengingar eru til að setja upp eldhúsinnréttingu í öðru herberginu sem aldrei hafa verið nýttar.
Gestasnyrting er á hæðinni.
2. hæðBorðstofa, stofa í einu rými með parketi á gólfi, stórir gluggar, og er útgengt á rúmgóðar flísalagðar svalir sem snúa í SV.
Endurnýjað
eldhús með sérsmíðuðum innréttingum, háglans hvít innrétting, mjög góð eyja, innfeld lýsing, útsýni úr eldhúsglugga til fjalla. Flísalagt með hita í gólfi.
Þvottahús flísar á gólfi, opnanlegt fag, góðar sérsmíðaðar innréttingar.
Gestasnyrting með flísum á gólfi.
3. hæðGott
hjónaherbergi með parketi á gólfi og útgengi á svalir, gott skápapláss.
Herbergi sem áður voru tvö herbergi og hafa verið sameinuð í eitt mjög rúmgott.
Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, flísalagt í hólf og gólf.
Gott
alrými/sjónvarpsstofa undir súð að hluta.
Raðhúsið hefur verið endurnýjað og hlotið gott viðhald á undangengnum árum. Eldhús og þvottahús á 2.h voru fallega endurnýjuð fyrir um 15 árum. Þetta er bjart eldhús, þar er mjög gott vinnupláss. Rafmagn í eldhúsi var endurnýjað við þær breytingar. Gler og ofnar hafa verið endurnýjuð þar sem þörf var á. Baðherbergi hafa einnig verið endurnýjuð. Þakið var endurnýjað fyrir tveimur árum. Ágætur garður er við húsið. Að auki er sameiginleg lóð með húsfélagi húsa 2-18.
Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.