210,4 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Fléttuvelli 26 í Hafnarfirði. Frábær staðsetning innst í botnlangagötu. Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 179,1 fm og bílskúrinn 31,3 fm, samtals 210,4 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Rúmgóð forstofa. Eldhús og stofa í björtu alrými Eldhúsið er með grárri innréttingu, granítborðplötur, ofn í vinnuhæð. Stofan er rúmgóð og með glæsilegum arinn, tveir útg. á lóð. Stórt baðherbergi með heitum potti og sturtu, tengi fyrir sjónvarp. Baðherbergið var stækkað á kostnað fjórða svefnherbergisins. Gestasalerni með granítflísum. Herbergi 1: Harðparket á gólfi og góðir skápar. Herbergi 2 & 3: Harðparket á gólfi Þvottahús er flísalagt og með innréttingu, útg. á lóð og innangengt í bílskúrinn. Bílskúrinn er með hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara. Gólfefni hússins er ýmist flísar/granítfflísar og harðparket. Lóðin er snyrtilega frágengin með hellulögðu bílaplani og verönd. Mögulegt er að tengja heitan pott á lóðinni.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.