Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög mikið endurnýjuð 208,6 fm 157,2fm fjögurra herbergja efri hæð og ris, sem skiptist í 157,2 fm íbúðarrými, ásamt 22,4fm nýuppgerðar studioíbúðar í kjallara og 29 fm bílskúr, samtals: 208,6fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í einu rými með útge... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög mikið endurnýjuð 208,6 fm 157,2fm fjögurra herbergja efri hæð og ris, sem skiptist í 157,2 fm íbúðarrými, ásamt 22,4fm nýuppgerðar studioíbúðar í kjallara og 29 fm bílskúr, samtals: 208,6fm. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í einu rými með útgengi út á suður svalir, hjónaherbergi með fataherbergi og baðkari, stórt svefnherbergi, og baðherbergi. Í risi er góð vinnuaðstaða, stórt svefnherbergi með salerni, fallegir þakgluggar yfir miðrými. Í kjallara er nýuppgerð studio íbúð sem er upplögð til útleigu. Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr með rafmagni, hita og vatni. Eignin er nánast öll endurnýjuð. Fallegt útsýni til suðurs og norðurs. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á NÁNARI LÝSING : Forstofa / hol með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi. Eldhús með vandaðri endurnýjaðri nýrri innréttingu og tækjum, stór eyja með helluborði, vínkælir, marmaraborðplötur, upptekið loft með innfelldri lýsingu, parket á gólfi, útgengi á góðar suður svalir. Stofa og borðstofa er björt með aukinni lofthæð og fallegum arni, parket á gólfi. Eldhús og stofur mynda eitt rými. Baðherbergi með baðkari og sturtu, innrétting við vask, hiti í gólfi, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Mjög rúmgott hjónaherbergi með mjög rúmgott með opnu fataherbergi, gólfsíðir gluggar, frístandandi baðkar, parket á gólfi. Veggur við baðkar er klæddur með indónesískum basalt-steinum. Svefnherbergi mjög rúmgott með skáp, parket á gólfi. Þvottahús með góðum geymsluhirslum geymsluskápum, málað parket á gólfi. Fallegur endurnýjaður nýr stigi upp á risloftið. Skrifstofurými með innskoti fyrir gestarúm, parketi á gólfi. Svefnherbergi, mjög rúmgott tvískipt með parketi á gólfi, fallegur þakgluggi yfir miðrými með sérsniðnum gardínum. Salerni með upphengdu salerni, og innréttingu, flísar á gólfi. Studoíbúð er í kjallara og hefur hún öll verið endurnýjuð, alrými með hvítri eldhúsinnréttingu, svefnaðstöðu, baðherbergi með sturtu, innrétting við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi. Bílskúr er með góðum geymsluhillum og vinnuborð með skolvaski, rafknúin hurðaopnari. Innangengt er í skúrinn frá sameign. Sameign hússins er mjög snyrtileg og vel um gengin. Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð undanfarin ár. 2020 : Eldhúsinnrétting, tæki, vatns- og raflagnir í eldhús endurnýjað. Baðherbergi allt tekið í gegn frá A-Ö, það stækkað. Öll gólfefni endurnýjuð, allir veggir og loft máluð. Rafmagnstafla yfirfarin. Nýjir fataskápar í öllum herbergjum. Stigi Skipt um sitga milli hæða, settur upp nýr stigi endurnýjaður ásamt með handriði. Efri hæð: Skipt um öll gólfefni, nýjir skápar, útbúið salerni á efri hæð. 2021 : Hjónaherbergi: sérsmíðaðariir innbyggðir fataskápar og frístandandi baðkari komið fyrir. Skrifstofurými stækkað og komið fyrir innskoti fyrir gestarúm á efri hæð. 2021/2022 Stúdíóíbúð í kjallara gerð fokheld og endurgerð að öllu leyti, vatns- og raflagnir, innréttingar, tæki, gólfefni. 2021 Viðhald á ytra byrði: 2021 – skipt um þakkanta og niðurfallsrör og þak málað. Öll raf- og vatnslagna, smíða og flísavinna hafi verið framkvæmd af fagmönnum. Hér er á ferðinni afar glæsileg og mjög mikið endurnýjuð eign í vinsælu hverfi í Árbænum. Fallegt útsýni er til suðurs og norðurs. Sjón er sögu ríkari.Hér er á ferðinni afar glæsileg og mjög mikið endurnýjuð eign í vinsælu hverfi í Árbænum. Fallegt útsýni er til suðurs og norðurs. Sjón er sögu ríkari.Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Lögg.fasteignasali í síma : 780-2700 eða