Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Fiskakvísl - rúmgóð og vel skipulögð fimm herbergja íbúð ásamt bílskúr í fallegu húsi, innst í botnlanga, teiknað af Kjartani Sveinssyni. Íbúðin er á efri hæð frá götu og fylgir henni bílskúr. Tvennar svalir í suður, vestur og norður með fallegu útsýni.Eign... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Fiskakvísl - rúmgóð og vel skipulögð fimm herbergja íbúð ásamt bílskúr í fallegu húsi, innst í botnlanga, teiknað af Kjartani Sveinssyni. Íbúðin er á efri hæð frá götu og fylgir henni bílskúr. Tvennar svalir í suður, vestur og norður með fallegu útsýni.Eignin verður sýnd í opnu húsi mánudaginn 7. október kl. 18:15 - 18:45. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, Komið er inn á anddyri með parketi, innaf anddyri er stór fataskápur. Bjart og fallegt parketlagt sjónvarpshol. Stór stofa og borðstofa með parketi, fallegir franskir gluggar setja skemmtilegan svip á rýmið. Út frá borðstofu eru stórar svalir í suður og vestur með fallegu útsýni. Eldhús með korkflísum á gólfi, falleg hvít Alno innrétting og vönduð tæki, uppþvottavél fylgir, ágætur borðkrókur. Innaf eldhúsi er þvottahús/búr með hillum. Svefnherbergisgangur með parketi. Stórt hjónaherbergi með parketi og góðum skápum, útgengt út á svalir í norður/vestur með fallegu útsýni að Esjunni. Tvö barnaherbergi með teppi á gólfi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting og sturtuklefi. Úr sameign er farið upp á stórt sameiginlegt geymsluloft. Bílskúrinn er við hlið inngangs í húsið, fullbúinn með hillum. Mjög falleg lóð í góðri rækt.Stærð íbúðarinnar er 120,3 fm og bílskúrinn er 20,7 fm. Íbúðinni fylgir sér bílastæði fyrir framan bílskúrinn og er þar hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Einnig eru nokkur sameiginleg stæði vestan við húsið.Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.