Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Ferjuvað 1, 110 Reykjavík, íbúð merk 202. Þriggja herbergja 78,6 m2 íbúð með sérinngangi af svölum í fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu. ** Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. **Skipulag: Anddyri, þvottahús, eldh... Sýna meira
Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Ferjuvað 1, 110 Reykjavík, íbúð merk 202. Þriggja herbergja 78,6 m2 íbúð með sérinngangi af svölum í fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu. ** Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. **Skipulag: Anddyri, þvottahús, eldhús/stofa, svalir, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. Nánar: Komið er inn í anddyri frá sérinngangi af svölum, flísar á gólfi og skápur fyrir yfirhafnir. Þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, skolvaskur á vegg og hillur. Opið er frá eldhúsinu yfir í stofu, parket á gólfum. Eldhúsinnrétting með skápum ofan og neðan borðplötu á vegg með undirlýsingu, eyja með helluborði og háf fyrir ofan, ofn og skúffur neðan borðplötu. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt. Frá stofu er gengið út á stórar yfirbyggðar svalir með svalahandriði úr gleri og áli. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parketi á gólfum og skápum. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefi. Innrétting með skápum neðan handlaugar og til hliðar við borðplötu, stór spegill með lýsingu fyrir ofan og handklæðaofn á vegg. Íbúðinni fylgir geymsla 6,5 m2 í sameign með hillum og sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Annað: Ferjuvað 1-5 er fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 2013. Sameiginleg bílastæði eru á lóð hússins, hunda og kattahald er leyfilegt skv., húsreglum. Öll helsta þjónusta er í hverfinu, svo sem leikskóli, grunnskóli, íþróttastarf og verslun. Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða Sjá einnig:fastborg.is/Smelltu hér til að fylgjast með mér á FacebookSmelltu hér til að fylgja mér á InstagramÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um skyldu kaupenda til að skoða fasteignir.BORG fasteignasala vill því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna áður en gert er kauptilboð og leita til hæfra sérfræðinga til frekari skoðunar.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða fyrir kaupin:Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8 / 0,4% af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði