Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:Vel skipulögð og falleg íbúð við Fellsmúla 2 í Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með góðar suðursvalir út frá stofu. Eignin vel staðsett með gluggahliðar til norðurs og suðurs, á frábær... Sýna meira
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:Vel skipulögð og falleg íbúð við Fellsmúla 2 í Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með góðar suðursvalir út frá stofu. Eignin vel staðsett með gluggahliðar til norðurs og suðurs, á frábærum stað miðsvæðis í Reykjavík. Skeifan, Kringlan, menntaskólar, skólar og leikskólar í göngufæri, auk almennrar afþreyingar og þjónustu s.s. heilsugæslu.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóðir fataskápar með sérsniðnum frágangi á hliðum og gólfi. Sérsniðinn vegglímdur spegill frá Íspan og steinplata frá Granítsmiðjunni.Eldhús: Fallegt eldhús með borðkrók. Góð innrétting með efri skápum öðru megin, Smeg blástursofn, Smeg gashelluborð, gufugleypir og pláss fyrir uppþvottavél.Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt stofa, upphengdir veggskápar í stíl við eldhúsinnréttingu. Útgengt út á sólríkar suðursvalir.Hjónaherbergi: Komið er inn í herbergin af stuttum gangi, hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, nýlega teppalagt með teppi frá Parka.Barnaherbergi: Barnaherbergi við hlið hjónaherbergis, fataskápar á gangi framan við herbergi, nýlega teppalagt með teppi frá Parka.Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á veggi. Baðkar með sturtu og baðinnrétting með rými fyrir þvottavél.Geymsla: Eigninni tilheyrir 4,7fm. geymsla á jarðhæð hússinsSameign: Sameiginleg hjóla-/vagnageymsla er í húsinu. Sett hefur verið upp sameiginleg hleðslustöð á bílastæði við húsið.Allar nánari upplýsingar veitir:Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarPanta FRÍTT söluverðmat