Miklaborg kynnir: Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í Fellsmúla 11. Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, næg bílastæði við húsið og örstutt í helstu verslun og þjónustu.
Um er að ræða rúmgóða 87,7 m² íbúð auk 5,1 m² sérgeymslu, samtals 92,8 m², með góðu og vel nýttu skipulagi. Íbúðin nýtur mikillar birtu og frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðurs, þar sem fallegt útsýni setur skemmtilegan svip á eignina.
Húsið hefur fengið umtalsvert viðhald og endurbætur á undanförnum árum.
Forstofa er mjög rúmgóð, parket á gólfi.
Eldhús með fínni innréttingu með efri og neðri skápum. Korkflísar á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar með parketi á gólfi. Útgengi á stórar og rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hvít innréttingu með efri og neðri skápum. Baðkar með sturtuhengi. Opnanlegur gluggi og handklæðaofn.
Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi. Opið fatahengi.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Geymsla er í sameign, 5,1 m², með hillum og opnanlegum glugga.
Húsið hefur fengið gott og reglubundið viðhald og hafa meðal annars eftirfarandi framkvæmdir verið unnar samkvæmt fyrri eiganda:
Við húsið er stór og sameiginlegur garður með leiktækjum, sem hentar vel fyrir fjölskyldufólk. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Um er að ræða bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð, með góðum suðursvölum og fallegu útsýni, í húsi sem hefur verið vel viðhaldið.
Nánari upplýsingar gefur Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 04.09.2026 Nánar | 92,8 m² | 743.534 kr. | 69.000.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 17. september 2020 | 40.900.000 kr. |
| 16. nóvember 2006 | 17.500.000 kr. |
0401 ![]() | 3 | 92,80 m² | 69.000.000 kr. 4. september 2026 | 40.900.000 kr. 17. september 2020 |
0102 ![]() | 2 | 58,20 m² | 53.800.000 kr. 3. maí 2024 | 13.400.000 kr. 13. febrúar 2010 |
0301 | - | - | - | 51.900.000 kr. 11. október 2021 |
| - | - | - | 19.000.000 kr. 23. desember 2011 |
| - | - | - | 22.800.000 kr. 9. júní 2011 |
| - | - | - | 69.000.000 kr. 7. maí 2024 |
| - | - | - | 57.000.000 kr. 8. mars 2024 |
| - | - | - | 30.500.000 kr. 25. október 2017 |
| 2 | 58,20 m² | 56.900.000 kr. 5. maí 2026 | 55.900.000 kr. 26. maí 2026 |
| 4 | 106,90 m² | 69.900.000 kr. 18. mars 2024 | 24.700.000 kr. 5. september 2011 |
| 3 | 92,80 m² | 54.900.000 kr. 19. janúar 2024 | - - |
| 3 | 91,40 m² | 51.900.000 kr. 19. september 2021 | 21.000.000 kr. 10. mars 2011 |
| 2 | 58,70 m² | 54.900.000 kr. 20. ágúst 2026 | 36.000.000 kr. 1. október 2020 |