DOMUSNOVA fasteignasala og Margrét Rós lgf. kynna í sölu einstaklega bjarta, rúmgóða og skemmtilega 3ja herbergja endaíbúð með glugga í þrjár áttir og gullfallegu útsýni yfir höfuðborgina og Esjuna innst í botnlanga við Fálkahöfða 8, í Mosfellsbæ. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 103,8 m2, þarf ... Sýna meira
DOMUSNOVA fasteignasala og Margrét Rós lgf. kynna í sölu einstaklega bjarta, rúmgóða og skemmtilega 3ja herbergja endaíbúð með glugga í þrjár áttir og gullfallegu útsýni yfir höfuðborgina og Esjuna innst í botnlanga við Fálkahöfða 8, í Mosfellsbæ. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 103,8 m2, þarf af er 4,8 m2 sérgeymsla í kjallara. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð á 2. hæð með sérinngangi og rúmgóðum svölum til suðurs og vesturs. Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi ásamt geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í S. 856-5858 eða Fasteignamat 2024 verður 72.750.000 krStaðsetning er afar góð, í grónu og skjólgóðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í stofnbrautir ásamt helstu verslanir og þjónustu. Grunnskóli, leikskóli, sundlaug og líkamsrækt er í stuttri göngu fjarðægð auk þess sem golfvöllur er í næsta nágrenni. Góðir göngu- og hjólastígar liggja í allar áttir um hverfið og náttúruna í kring.Lýsing eignar:Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp og þaðan er gengið inn í rúmgott alrými eða hol með fallegu harðparketi á gólfi og nýstist vel sem sjónvarpshol. Á hægri hönd er svefnherbergisgangur með tveimur svefnherbergum og baðherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum glugga og fataskáp. Barnaherbergi er með góðum glugga til norðurs og fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtuklefa og góðum glugga með opnanlegu fagi. Nýleg baðinnrétting með stórum vaski og rúmgóðum skúffum ásamt vegghengdum skáp og spegli. Eldhúsið er með nýlegri hvítri innréttingu og góðu skápa- og borðplássi, ásamt innbyggðri uppþvottavél. Innst í eldhúsinu er borðkrókur við glugga sem eru byggður í út-skot með dásamlegu útsýni til vestur og yfir Esjuna. Inn af eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, veggfastri borðplötu og skápum ásamt glugga með opnanlegu fagi. Stofan tengist annars vegar eldhúsi frá borðkrók og hinsvegar holi/alrými. Hún er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og rúmar vel borðstofu og setustofu, suður hliðin er með útgengi út á góðar flísalagðar svalir sem snúa mót suðri og vestri og ná fyrir hornið á íbúðinni. Flæðandi harðparket er á gólfum í öllum rýmum íbúðarinnar fyrir utan baðherbergi og þvottahús.Húsið og lóðin:Aðkoman að húsinu er góð, en gengið inn í íbúðina um opinn stigagang og sérinngang. Á jarðhæð hússins er sérgeymsla (5,2 m2) sem fylgir eigninni ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjóla/vagnageymslu. Stórt og gott bílaplan er við húsið þar sem stendur yfir uppsetning á einni rafhleðslustöð, en búin að leggja dreifikerfi með möguleika á alls 4 stöðvum.Garður umhverfis húsið er allur hinn snyrtilegasti og vel hirtur.Framkvæmdir á húsi og íbúð á árunum 2021-2023:- Nýlegt parket á alrými, svefnherbergi, gang og sjónvarpshol.- Nýlegar innrétting á baðherbergi ásamt salerni, sturtuklefa, vaski og blöndunart.- Nýlegar innréttingar í eldhús og þvottahúsi og nýr miðstöðvarofn í stofu- Þak málað og þakkantur endurnýjaður- Útihurðar og gluggar málað að utan sem og hvítur litur á húsi.- Útiljós á stigagöngum og svölum endurnýjuð- Stigagangur málaður ásamt endurnýjun á geymslu hurðumNánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532 / VILTU VITA HVERS VIRÐI ÞÍN FASTEIGN ER Í DAG? BÓKA FRÍTT FASTEIGNAVERÐMATVILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINAKÍKTU Í HEIMSÓKN Á SÍÐUNA MÍNA: facebook.com/margretros.domusnovaUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.