Pálsson Fasteignasala kynnir:
Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með fallegu útsýni í vinsælu hverfi á Selfossi.Falleg og skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi með lyftu við Eyraveg 46 á Selfossi. Eignin er björt og vel skipulögð með opnu alrými, rúmgóðu svefnherbergi og svölum þar sem njóta má fallegs útsýnis.
- Fallegt útsýni
- Bjart alrými
- Stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar skv HMS: 71.9m2
Skipting eignarEignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús og stofu í opnu alrými ásamt geymslu í sameign.
Forstofa er flísalögð.
Svefnherbergi er bjart og rúmgott með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél.
Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með góðri birtu frá stórum gluggum. Frá stofu er útgengt á svalir með fallegu útsýni.
Húsið var byggt árið 2006 og er klætt að utan með áli og timbri. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu og bílaplan er malbikað.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.