LÓB fasteignir kynnir eignina Engjavík 12, 800 Selfoss, raðhús byggt árið 2023, úr timbri. Birt stærð 99.3 fm. Fjögurra herbergja miðjuraðhús í Jórvíkuhverfi á Selfossi. Hiti í gólfum ásamt hitastýringum, innfelld ljós og hellulagt bílaplan.Í eigninni eru 3 svefnherbergi, eldhús og stofa í sameiginlegu rými, baðherbergi og þvottahús. Ljóst plastparket á gólfi í öllum herbergjum að utan votrýmum og forstofu þar sem flísar eru á gólfi. Einnig flísar á vegg að hluta á baðherbergi. Brún eldhúsinnrétting sem er í L með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Búið að taka vegginn niður að hluta við eldhúsinnréttingu sem opnar rýmið skemmtilega. Ljós eru upptekin í loftið í eigninni. Í eldhúsi er stór eyja sem hægt er að sitja við. Svefnherbergin eru rúmgóð með skápum. Góð innrétting í þvottahúsi með vask.
Að utan er eignin klædd með silfurlitaðri álklæðningu og hvítt bárujárn á þaki.Hellulagt bílaplan og steypt ruslaskýli fyrir þrjár tunnur. Engin nágranni við bakgarð og því meira næði en gengur og gerist í hverfinu.
** Eignin er laus við kaupsamning.Nánari upplýsingar veitir
Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209