Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega fallega og vandaða þriggja herbergja íbúð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi byggt 2020 á frábærum stað við Elliðabraut í Norðlingaholti. Húsi... Sýna meira
Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali og Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega fallega og vandaða þriggja herbergja íbúð auk bílastæðis í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi byggt 2020 á frábærum stað við Elliðabraut í Norðlingaholti. Húsin eru álklædd og allar íbúðir með sjálfstæðri loftræstingu. Norðlingaholt er eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar í góðri tengingu við náttúruna, verslanir, þjónustu og stofnbrautir.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 78,0 fm. og þar af er geymsla 7,2 fm. Bílastæði í bílakjallara er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. Nánar um eignina:Forstofa með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Eldhús með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, innbyggð uppþvottavél, helluborð, ofn í vinnuhæð og parket á gólfi. Eldhús er opið við stofu. Stofa og borðstofa opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar svalir úr stofunni og eldhúsi. Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi. Barnaherbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. Gangur með innbyggðri lýsingu og parketi á gólfi. Baðherbergi með nýlegri sérsmíðaðri innréttingu frá Axis, innangengri sturtu, upphengt salerni og flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi. Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni og er rafmagnstengi fyrir hleðslustöð til staðar.Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 7,2 fm. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist, loftgæðum og útsýni. Sameignin er rúmgóð og björt. Loftgæði-NýjungSérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úrbaði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum.Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar.Byggingaraðili og aðalverktaki er MótX (www.motx.is). Húsið var byggt árið 2020.Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020 eða á netfanginu og Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða á netfanginu .Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.