Domusnova og Ingunn Björg kynna : Glæsilega og afar rúmgóða 155,8 fm lúxusíbúð á annari hæð ásamt bílastæði í bílakjallara við Efstaleiti 12. Í íbúðnni er rúmgott eldhús, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær rúmgóðar stofur ásamt sólsskála, með útgengi á svalir sem snúa til suðvesturs, svali... Sýna meira
Domusnova og Ingunn Björg kynna : Glæsilega og afar rúmgóða 155,8 fm lúxusíbúð á annari hæð ásamt bílastæði í bílakjallara við Efstaleiti 12. Í íbúðnni er rúmgott eldhús, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær rúmgóðar stofur ásamt sólsskála, með útgengi á svalir sem snúa til suðvesturs, svalir eru einnig út frá hjónaherbergi. Innréttingar og tæki í eldhúsi og baðherbergi hafa verið endurnýjuð á smekklegan hátt fyrir nokkrum árum. Gólfefni íbúðar sem eru parketlögð eru með fallegu gegnheilu eikarparketi með síldarbeinamynstri. Íbúðin er í einu eftirsóttasta fjölbýli landsins í næsta nágrenni við Kringluna og útivistarsvæði Fossvogsdals og Nauthólsvík. Einstaklega falleg og mikil sameign með lyftu, útisundlaug, heitum pottum, gufubaði, líkamsræktarsal, samkomusal, setustofu og tómstundarrýmum með snóker og pool borði. Mjög snyrtilegt húsnæði í alla staði. Húsvörður er búsettur í íbúð í eigu húsfélagsins og hefur hann umsjón með fasteigninni og veitir aðstoð við íbúa eins og starfssvið hans leyfir.Frábær staðsetning. Góð aðkoma er að húsinu.Nánari upplýsingar veitir :Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi. Eldhús: Innrétting og tæki voru endurnýjuð fyrir nokkrum árum. Mjög rúmgóð innrétting með hvítum neðri skápum, efri skápar eru úr eik. Granítborðplata, ofn í vinnuhæð, helluborð, háfur. Parket á gólfi. Gangur: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur. Stofa:/ borðstofa: Mjög rúmgóð og björt, parket á gólfi. Sólskáli: Bjartur og rúmgóður, steinflísar á gólfi. Útgengi á svalir sem snúa til suðvesturs.Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og útgengi út á litlar svalir. Parket á gólfi. Herbergi 2: Parket á gólfi, góðir fataskápar.Baðherbergi 1: Fallegar marmaraflísar á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, handlaug, eikarhillur á vegg. Baðherbergi 2: Fallegar marmaraflisar á gólfi og veggjum, rúmgóð eikarinnrétting á tveimur veggjum, granítborðplata, baðkar, sturta, handklæðaofn, upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla: Rúmgóð 11 fm geymsla er staðsett í sameign. Bílastæði / bílastæðahús: Eigninni fylgir bílastæði með rafhleðslustöð merkt B13 á eignaskiptasamning, merkt 204 í bílastæðahúsi. Góð þvottaaðstaða með rúmgóðu þvottastæði. Þvottakústur og slanga. Sameiginleg geymsla með hillum merktum hverjum eiganda fyrir búnað og efni til bílaþvottar. Sameiginleg geymsla fyrir hjólbarða. Kjallari: Í kjallara er fínn líkamsræktarsalur með góðum tækjum ásamt gufubaði. Sundlaugarsvæði er með upphitaðri sundlaug og tveimur heitum pottum. Pool og snóker borð eru einnig staðsett í kjallara. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.