Domusnova og Ingunn Björg kynna : Glæsilega og afar rúmgóða 157,8 fm lúxusíbúð á jarðhæð ásamt bílastæði í bílakjallara við Efstaleiti 12. Rúmgóð hellulögð verönd er út frá sólstofu sem snýr til suðvesturs og vesturs. Íbúðin er í einu eftirsóttasta fjölbýli landsins í næsta nágrenni við Kringluna. ... Sýna meira
Domusnova og Ingunn Björg kynna : Glæsilega og afar rúmgóða 157,8 fm lúxusíbúð á jarðhæð ásamt bílastæði í bílakjallara við Efstaleiti 12. Rúmgóð hellulögð verönd er út frá sólstofu sem snýr til suðvesturs og vesturs. Íbúðin er í einu eftirsóttasta fjölbýli landsins í næsta nágrenni við Kringluna. Einstaklega falleg og mikil sameign með lyftu, útisundlaug, heitum pottum, gufubaði, líkamsræktarsal, samkomusal, bar, setustofu og tómstundarrýmum með snóker og pool borði. Mjög snyrtilegt húsnæði í alla staði. Húsvörður er búsettur í íbúð í eigu húsfélagsins og hefur hann umsjón með fasteigninni og veitir aðstoð við íbúa.Frábær staðsetning. Góð aðkoma er að húsinu.Nánari upplýsingar veitir :Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur. Eldhús: Eikarinnrétting, parket á gólfi. Stofa:/ borðstofa: Mjög rúmgóð og björt, parket á gólfi. Sjónvarpsrými: Inn af stofu er gott rými fyrir sjónvarp sem í dag er nýtt sem bókastofa. Sólskáli: Bjartur og rúmgóður, parket á gólfi. Útgengi á rúmgóðan, hellulagðan sérafnotaflöt sem snýr til suðvesturs og vesturs.Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum skápum og útgengi út á sérafnotaflöt, útsýni yfir sundlaug. Parket á gólfi. Herbergi 2: Parket á gólfi, fataskápur. Baðherbergi : Flísalagt í hólf og gólf, eikarinnrétting, baðkar með sturtu. Þvottahús: Er staðsett inn af forstofu.Geymsla: 13 fm geymsla er staðsett í sameign. Gólfefni íbúðar sem eru parketlögð eru með fallegu eikarparketi með síldarbeinamynstri. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.