LIND Fasteignasala & Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu:Fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð, á þriðju hæð með fallegu útsýni, yfirbyggðum suður svölum og stæði í bílageymslu í Dalseli 12, Reykjavík. Skráð stærð eignar skv. FMR er 95,7 fm og skipti... Sýna meira
LIND Fasteignasala & Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu:Fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð, á þriðju hæð með fallegu útsýni, yfirbyggðum suður svölum og stæði í bílageymslu í Dalseli 12, Reykjavík. Skráð stærð eignar skv. FMR er 95,7 fm og skiptist í íbúð 88,7 fm og geymslu 7 fm. Íbúðin er merkt 03-02. -Áætlað fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2025 er: 57.000.000 kr.Eignin skiptist í:Forstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús, svalir & geymslu.Nánari lýsing eignar:Forstofa: með parketi á gólfi og fataskáp með spegla rennihurðum.Eldhús: flísalagt gólf, hvít háglans innrétting með paloma múr á milli neðri og efri skápa. Innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og háfur.Borðstofa: flísalagt gólf, með fallegu útsýni og útgengt er út á yfirbyggðar suður svalir.Stofa: björt og rúmgóð með parketi á gólfi.Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf með flísum úr Álfaborg. Dökkgrá innrétting með hvítum vaski, baðkar með sturtu, handklæðaofn og spegill með innbyggðri lýsingu.-Baðherbergið var uppgert árið 2022.Þvottahús: flísalagt gólf, borðplata og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Staðsett inn af eldhúsi.Hjónaherbergi: með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp með rennihurðum.Svefnherbergi: með parketi á gólfi.Geymsla: 7 fm, staðsett í sameign.Hjóla- og vagnageymsla: er sameiginleg.-Parket í íbúðinni var slípað og borið á það í lok árs 2022.Húsið er steypt fjölbýlishús frá 1975 sem hefur fengið viðhald undanfarin ár, m.a. er húsið álklætt og er því viðhaldslítið.Dalsel 12 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.Allar nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.