Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 4. herbergja íbúð á 3 hæð í litlu fjölbýlishúsi í Lauganeshverfi. Eignin er samkvæmt fasteignaskrá 150,9 fm. þ.a. er íbúðarhluti 94,9 fm. og 56 fm. geymsla á 1 hæð sem gefur mikla möguleika á í ... Sýna meira
Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða 4. herbergja íbúð á 3 hæð í litlu fjölbýlishúsi í Lauganeshverfi. Eignin er samkvæmt fasteignaskrá 150,9 fm. þ.a. er íbúðarhluti 94,9 fm. og 56 fm. geymsla á 1 hæð sem gefur mikla möguleika á í nýtingu. Eignin er staðsett á góðum stað miðsvæðis rétt hjá Laugardalnum og stutt er í skóla, leikskóla, sund, líkamsrækt og helstu þjónustu. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stóra geymslu sem staðsett er í sameign, sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymslu. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing eignar: Forstofa: Með fataskáp og parket á gólfi / fataskápur á efri pall í stigagang.Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með útgengi út í austur svalir, parket á gólfi. Samkvæmt teikningu er búið að minnka stofu og búa til aukaherbergi. Eldhús: Með góðri innréttingu og borðkrók, helluborð og ofn, dúkur á gólfi.Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi. Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi, fataherbergi, parket á gólfi. Baðherbergi: Með góðri innréttingu, baðker, veggskápur, flísar á vegg að hluta, dúkur á gólfi.Geymsla: Á fyrstu hæð er stór 56 fm. geymsla. Búið er að útbúa þar parketlagt herbergi. Miklir möguleikar í nýtingu.Sameign: Í stigaganginum eru tvær íbúðir og alls níu íbúðir í húsinu. Teppi á stigagang.Þvottahús: Í sameign er sameiginlegt þvottahús.Vagna og hjólageymsla: Á fyrstu hæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Garður: Er sameiginlegur og gengið er inn í húsið að norðanverðu. Framan við anddyri er steypt stétt og möl í innkeyrslu. Húsið: Hefur verið vel viðhaldið og m.a. skipt um þakjárn 2002, gluggar á austurhlið endurnýjaðir og gert við múr að utan fyrir nokkrum árum. Eignin er svo staðsett á frábærum stað miðsvæðis rétt hjá Laugardalnum og stutt í skóla, leikskóla, sund, líkamsrækt og hina ýmsu þjónustu. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða .----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 68.820,- m/vsk.