ELKA lgf. og Fasteignasalan TORG kynnir góða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með aukinni lofthæð og sérinngangi á frábærum stað á Laugarnesi. Eignin er skráð 76,6 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, anddyri og geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Elka ... Sýna meira
ELKA lgf. og Fasteignasalan TORG kynnir góða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með aukinni lofthæð og sérinngangi á frábærum stað á Laugarnesi. Eignin er skráð 76,6 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, anddyri og geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða í tölvupósti: Nánari lýsing: Gengið er inn um sérinngagn inn í flísalagða forstofu með skó skáp. Inn af henni er opið og bjart alrými með eldhúsi og stofu. Eldhúsið er með nýlegri og rúmgóðri innréttingu með góðu skápaplássi, keramík helluborði og nýlegri viftu. Opið er inn í bjarta og rúmgóða stofu með stórum glugga, parket er á gólfi. Gangur er fyrir innan með góðum skáp og skrifstofukrók, inn af ganginum er gengið inn í tvö svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er rúmgott með góðum, nýlegum fataskáp og parket á gólfi. Hitt svefnherbergið er nokkuð rúmgott, einnig parketlagt og með útangi út í bakgarðinn. Baðherbergið er með flísalegt gólf og nýlegri innréttingu og nýlegum sturtuklefa. Tengi er fyrir þvottavél inni á baðherbergi. Stæði er fyrir þvottavél í sameiginlegu rými í kjallara, þar er einnig sameiginlegt þurrkrými ásamt hjóla- og vagngeymslu. Sérgeymsla er í kjallara sem er 8fm að stærð með góðum hillum. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem kjörbúð, sund, líkamsrækt og leik- og grunnskóla. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð. Parket og eldhúsinnrétting síðan ágúst 2015. Nýr sturtuklefi var settur inn á baðherbergi í maí 2021 og skápur á baði í maí 2022. Nýr skápur settur í hjónaherbergi í september 2022. Hugsað hefur verið vel um húsið, 2009 var þakið endurnýjað, árið 2011 var skólpið myndað og leit allt vel út, árin 2019 og 2020 var allt húsið tekið í gegn að utan. Þ.e.a.s. múrað, málað og skipt um klæðningu á því, gluggar, handrið og grindverk lagað og málað. Einnig var nýtt steinhandrið sett að framan á 2. hæð hússins. Lóðin er í óskiptri sameign en þar eru nokkur steypt bílastæði, einnig eru bílastæði á götu fyrir framan íbúð. Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða í tölvupósti: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.