Hraunhamar kynnir fallega 6-7 herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt bílskúr vel staðsett í Norðurbæ HafnarfjarðarÍbúðin er 108,5 fermetrar, geymsla með gluggum, innangengt úr íbúðinni. 36,5 fermetrar. Íbúðarhlutinn er 145 fermetrar. Bílskúr 24,5 fermetrar og geymsla 6,7 fermetrar, einnig á íbúðin sérge... Sýna meira
Hraunhamar kynnir fallega 6-7 herbergja íbúð á fyrstu hæð ásamt bílskúr vel staðsett í Norðurbæ HafnarfjarðarÍbúðin er 108,5 fermetrar, geymsla með gluggum, innangengt úr íbúðinni. 36,5 fermetrar. Íbúðarhlutinn er 145 fermetrar. Bílskúr 24,5 fermetrar og geymsla 6,7 fermetrar, einnig á íbúðin sérgeymslupláss í sameiginlegri geymslu. Samtals er séreignahluti íbúðar 176,2 fermetrar. Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, fimm svefnherbergi, stofa, sjónvarpshol, eldhús með borðkróki, þvottahús, baðherbergi, geymsla og bílskúr auk reglubundinnar sameignar. Nánari lýsing eignarinnar:Forstofa með fataskápum.Gott hol, Eldhús með smekklegri innréttingu, stór gaseldavél. Inn af eldhúsinu er þvottahús. Björt stofa og þaðan er utangengt út á suð-vestur svalir.Sjónvarpshol, þar væri auðvelt að koma fyrir herbergi. Svefnherbergisgangur: tvö barnaherbergi og gott hjónaherbergi með fataskápum. Fallegt baðherbergi með upphendu salerni, baðkar og þar er sturtuaðstaða. fín innrétting.Úr holinu er innangengt með hringstiga niður á neðri hæðina, þar er opið 36,5 fermetra rými, sem býður upp á ýmsa möguleika. Væri auðveldlega hægt að stúka niður í tvö herbergi e.t.v. Einnig er inngangur í rýmið úr sameigninni. Gólfefni er harðparket og flísar. Sérgeymsla í sameign, bílskúr með sjálfvirkum bílskúrsopnara. Nýlega búið að mála húsið að utan og yfirfara glugga.Þetta er skemmtileg eign sem býður upp á ýmsa möguleika. Stutt í skóla og leikskóla og verslanir í göngufæri. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is