Helgafell fasteignasala ehf kynnir: BRATTAHLÍÐ 5, 810 HVERAGERÐI.Falleg fimm herbergja efri sérhæð með bílskúr á útsýnisstað í Hveragerði.Eignin er skráð 191,8 fm., þar af er bílskúr 31,6 fm. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit Brattahlíð 5 er steypt tvíbýlishús, byggt 1967, upphaflega sem prests... Sýna meira
Helgafell fasteignasala ehf kynnir: BRATTAHLÍÐ 5, 810 HVERAGERÐI.Falleg fimm herbergja efri sérhæð með bílskúr á útsýnisstað í Hveragerði.Eignin er skráð 191,8 fm., þar af er bílskúr 31,6 fm. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit Brattahlíð 5 er steypt tvíbýlishús, byggt 1967, upphaflega sem prestssetur bæjarins. Bílskúrinn var byggður 1972. Komið er inn í bjart flísalagt anddyri með nýlegum fataskáp. Parketlögð stofa/borðstofa með góðri lofthæð og stórum gluggum. Eldhús með nýlegum tækjum. Eikar innrétting, flísar milli efri og neðri skápa, borðkrókur, keramik helluborð og Gorenje bökunarofn. Opið er í eldhús bæði af gangi og úr borðstofu. Gengið er úr stofu í um 30 fm. parketlagðann ósamþykktann sólskála, sem reistur var 2017. Þaðan er útgengi á stórann viðarpall til suðurs og vesturs.Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni. Tvö með skápum, parket á gólfum, nema dúkur á einu þeirra.Stærsta herbergið er inn af aðalrými/holi með miklum gluggum. Gestasalerni inn af forstofu.Frá forstofu er svefnherbergisgangur. Þar eru þrjú svefnherbergi, fataherbergi/geymsla og útgengi á stórar svalir til suðurs. Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, baðkari og sturtu.Bílskúr er skráður 31,6 fm. Þar af er rými fyrir hitainntak með aðgengi bakatil.Lóðin er 1.667,0 fm. með fallegum trjágróðri og hleðslusteini.Tvö bílaplön eru við húsið eitt fyrir hvora hæð og eru þau bæði malbikuð, fleiri bílastæði eru fyrir framan hleðsluvegg við götuna.Skipt hefur verið um gler á suðurhlið að einu undanskildu.Stór og falleg eign sem bíður upp á ýmsa möguleika. Húsið stendur hátt með fallegu útsýni. Nánari upplýsingar veita:Knútur Bjarnason, löggiltur fasteignasali, s: 775-5800 / Kristján Þór Sveinsson, löggiltur fasteignasali, s: 898-6822 / ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við verðmetum eign þína þér að kostnaðarlausu, þó kannski fyrir einn kaffibolla -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.500 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 74.400,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.