Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Borgarsíða 21 - Skemmtilegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 138,8 m²Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Neðri hæð 81,2 m² : Forstofa, hol, eldhús, stofa, svefnherbergi, snyrting, geymsla og þvottahús/bakinngangur.
Efri hæð 52,4 m² : Sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með flísum á á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Hvít innrétting með hvíttaðri viðarlitaðri bekkplötu og þiljum fyrir ofan. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Ofnar, helluborð og háfur eru frá AEG. Rúmgóður borðkrókur með stórum suður glugga og hurð til suðurs út á um 75 m² timbur verönd.
Stofa og hol eru með ljósu harðparketi á gólfi. Af holi liggur timbur stigi upp á efri hæðina.
Sjónvarpshol er á efri hæðinni og þar er ljóst harðparket á gólfi og hurð út á suður svalir.
Svefnherbergin eru fjögur, öll ágætlega rúmgóð og með ljósu harðparketi á gólfi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað. Ljósar flísar á gólfi og stærstum hluta veggja ,hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc, walk-in sturta, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Hiti er í gólfi og er honum stýrt í gegnum ofninn.
Snyrting er á neðri hæðinni með flísum á gólfi og hluta veggja, handlaug og wc.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi og ljós innrétting með skolvaska og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Önnur
geymsla er með norðurhlið hússins skráð 5,2 m² að stærð og er utangengt í hana.
Annað- Eignin er skráð 138,2 m² að stærð er nýtanlegir fermetrar eru fleiri.
- Rúmgóð timbur verönd er með allri suðurhlið hússins.
- Hluti af gleri hefur verið endurnýjað.
- Geymsluloft er yfir hluta og er hleri í loftinu á baðherberginu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.