Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sér bílastæði og auka íbúð í bílskúr. Eignin er skráð 116 fm að stærð, þar af íbúðarrými 84,0 fm og bílskúr 32,0 fm, og skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, ... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli með sér bílastæði og auka íbúð í bílskúr. Eignin er skráð 116 fm að stærð, þar af íbúðarrými 84,0 fm og bílskúr 32,0 fm, og skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu og bílskúr sem hefur verið að hluta til innréttaður sem íbúð. Eign á vinsælum stað með möguleika á góðum leigutekjum!Nánari lýsing:Forstofa/gangur: komið inn um sameiginlegan inngang með fyrstu hæð og gengið upp í forstofu íbúðar þar sem er fatahengi. Stofa: er björt með glugga til austurs og útgengi á rúmgóðar suður svalir. Á gólfi er parket. Eldhús: er með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og borðplötu, ágætis vinnuaðstöðu og borðkróki. Á gólfi er parket. Í eldhúsi er stór gluggi með opnanlegu fagi sem og opnanlegur þakgluggi.Hjónaherbergi: rúmgott með gluggum til suðurs og parketi á gólfi.Herbergi: rúmgott með gluggum til suðurs og parketi á gólfi. Herbergi: inn af stigagangi og er að hluta til undir súð þ.a. nýtanlegir fermetrar eru fleiri en birt stærð gefur til kynna. Á gólfi er dúkur. Baðherbergi 1: með baðkari, opnanlegur þakgluggi innan rýmis og lítil geymsla. Baðherbergi 2: rúmgott með ágætri innréttingu, sturtuklefa, ljósum dúk á gólfi, glugga með opnanlegu fagi og opnanlegum þakglugga. Þvottahús: inn af anddyri, sameiginlegt með fyrstu hæð.Bílskúr: er innréttaður að hluta til sem íbúð. Þar er komið inn í anddyri þar sem eru flísar á gólfi og fatahengi. Í alrými er stór gluggi með opnanlegu fagi og ágæt eldhúsinnrétting. Á gólfi er parket. Baðherbergi er með flísum á gólfi, nýlegri innréttingu, upphengdu WC og sturtuklefa.Loks er í hluta bílskúrs sérgeymsla íbúðar og eigninni fylgir sér bílastæði og fallegur sameiginlegur garður.Skv. upplýsingum frá seljanda hefur þak verið endurnýjað að hluta (járn, pappi og timbur eftir þörfum) sem og skólplagnir. Eign með mikla möguleika á frábærum stað þar sem stutt er í margvíslega þjónustu, leik- og grunnskóla, sundlaug Kópavogs, og fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.