Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna fallega og vel staðsetta 121,1 fm, 5 herbergja íbúð á 3.hæð með tvennum svölum og fallegu útsýni við Bólstaðarhlíð 56. Bílskúrsréttur fylgir.**EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS FLJÓTLEGA**Nánari upplýsingar veitir:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur faste... Sýna meira
Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna fallega og vel staðsetta 121,1 fm, 5 herbergja íbúð á 3.hæð með tvennum svölum og fallegu útsýni við Bólstaðarhlíð 56. Bílskúrsréttur fylgir.**EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS FLJÓTLEGA**Nánari upplýsingar veitir:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Með ljósum fataskáp og flísum á gólfi.Eldhúsið: Með ljósri innréttingu og gráleitum flísum á milli efri og neðri skápa. Flísar á gólfi.Stofa og borðstofa: Í opnu björtu rými og gluggar á þrjá vegu með fallegu útsýni. Harðparket á gólfi. Frá stofu er gengið út á svalirSvefnherbergi I: (hjónaherbergi): Með rúmgóðum skáp og harðparketi á gólfi. Frá hjónaherbergi er gengið út á svalir.Svefnherbergi II: Gott herbergi með parketi á gólfi. Frá herberginu er útgengi á svalir með fallegu útsýni til vesturs.Svefnherbergi III og IV: Með parketi á gólfi.Geymsla: 6,3fm sér geymsla er í kjallara.Á stigapalli fyrir framan íbúðina er sér geymsluskápur.Sameign: Í sameign er þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.Framkvæmdir:Árið 2017 var stigagangur endurnýjaður, m.a. skipt um teppi og málað.Árið 2018-2019 var húsið múrviðgert, málað, nýjar þakrennur settar, þak lagfært og málað. Svalagólf jöfnuð og lökkuð.Um er að ræða góða eign á frábærum stað þar sem örstutt er í alla helstu þjónustu þ.m.t. leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Einnig er stutt í íþróttir, verslanir eins og Kringluna og miðbærinn er innan seilingar. Nánari upplýsingar veita:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.