FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028
ÍRAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ BOGATÚN NR. 28 Á HELLU.
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utan með steniklæðningu. Eignin telur:
Anddyri með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Alrými með parketi á gólfi, nýlegri vandaðri innréttingu og hurð út í garðinn.
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra og hurð er úr hjónaherbergi út í garðinn.
Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu. Innangegnt er í
bílkskúrinn úr anddyrinu. Hann er með innkeyrsludyrum og gönguhurð. Inn af honum er
geymsla. Við húsið er hellulögð gangstétt og verönd og steypt bifreiðastæði með hitalögn.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.