Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna: Boðavík 18 Selfossi.
Boðavík 18 er nýleg 99.3 fm íbúð í raðhúsi. Húsið er timburhús byggt árið 2023, klætt að utan með járni/áli. Möl á bílaplani og steypt ruslaskýli fyrir þrjár tunnur. Þökulögð suðurlóð og jarðvegsskipt fyrir sólpalli.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.Innra skipulag:Forstofa með flísum, fataskápur.
Hol, eldhús og stofa í opnu rými, hurð út í bakgarð úr stofu. Harðparket á gólfi. Stór brún eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Í eldhúsi er eyja sem hægt er að sitja við.
Svefnherbergin eru þrjú, harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi flísalagt, opin sturta, innrétting og handklæðaofn.
Þvottahús með innréttingu.
Hiti í gólfum með stýringum og innfeld lýsing. Varmaskiptir á neysluvatni.
Allt mjög snyrtilegt og vel umgengið.
Boðavík 18 er í Jórvíkurhverfi á Selfossi sem er nýtt hverfi í uppbyggingu. Stutt í grunnskóla og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.