*BÍLSKÚR FYLGIR**GLÆSILEGT ÚTSÝNI*Fasteignasalan Bær kynnir 3ja herbergja íbúð á 3. hæð, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 110,1 fm., þar af geymsla 5,5 fm. og bílskúr 25,1 fm. Flísalagðar svalir snúa í vestur og eru með glæsilegu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla, bókasafn, sundlaug, verslun, s... Sýna meira
*BÍLSKÚR FYLGIR**GLÆSILEGT ÚTSÝNI*Fasteignasalan Bær kynnir 3ja herbergja íbúð á 3. hæð, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 110,1 fm., þar af geymsla 5,5 fm. og bílskúr 25,1 fm. Flísalagðar svalir snúa í vestur og eru með glæsilegu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla, bókasafn, sundlaug, verslun, strætisvagna o.fl. Endurnýjað m.a. að sögn seljanda:Árið 2020 var járn á þaki og rennur endurnýjað. Árið 2017-18 múr- og gluggaviðgerðir, ásamt því að endurnýjað var gler á austurhlið. Árið 2016 var stigahús tekið í gegn að innan. Nánari upplýsingar veitir:Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri. Hol er með fataskáp. Stofa/borðstofa er með útgengt á vestursvalir. Í eldhúsi er eldri innrétting, flísalagt milli efri og neðri skápa, borðkrókur og endurnýjuð eldavél. Í svefnherbergisgangi er vinnurými með skápum og borði. Í baðherbergi er baðkar, skápur yfir vask, tengi fyrir þvottavél, opnanlegur gluggi og flísar kringum baðkar og vask. Hjónaherbergi og barnaherbergi eru með fataskáp. Parket er á gólfum, nema á anddyri, herbergjum, eldhúsi og baðherbergi þar sem er dúkur. Sérgeymsla með hillum er í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð.Bílskúr, sem er álklæddur að utan, er með sjálfvirkum hurðaopnara, hita, rennandi vatni, skolvask í borðplötu og glugga á bakhlið.Annað: Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúð 79,5 fm., geymsla 5,5 fm. og bílskúr 25,1 fm., eða samtals 110,1 fm. Greitt er einu sinni á ári gjald vegna bílskúrs, sem er rafmagn og hiti. Hiti vegna bílskúrs er yfirleitt ca. 13-15 þús. krónur á ári, en greitt er fyrir rafmagn miðað við notkun.Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð