Gimli fasteignasala kynnir: Fallega og bjarta fjögurra herbergja 113 fm endaíbúð með sérinngangi á eftri hæð í Áslandinu. Eignin er mikið endurnýjuð á smekklegan og vandaðan hátt. Tvennar svalir. Falleg fjölskyldueign í þessu eftirsótta hverfi með góðu útsýni þar sem gönguleiðir og útivistarsvæði er... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Fallega og bjarta fjögurra herbergja 113 fm endaíbúð með sérinngangi á eftri hæð í Áslandinu. Eignin er mikið endurnýjuð á smekklegan og vandaðan hátt. Tvennar svalir. Falleg fjölskyldueign í þessu eftirsótta hverfi með góðu útsýni þar sem gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 7927576, eðaDaði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 6981164, Gengið er inn um sér inngang í bjart anddyri með fataskáp og þaðan inn á parketlagðan gang. Úr forstofu er rúmgott herbergi með harðparketi á gólfum og skápum. Á gangi eru tvö svefnherbergi og bað. Hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi og harðparketi á gólfi. Barnaherbergi er með góðum skáp og harðparketi á gólfi. Eldhús, stofa og borðstofa eru í fallegu og björtu rými þar sem útgengt er út á suðursvalir. Í eldhúsi er nýleg hvít innrétting með miklu skápaplássi og borðkrók. Úr borðkrók er útgengt út á norð-austursvalir. Harðarket er á gólfum. Úr stofu er gengið út á suðursvalir.Nánari lýsing:Anddyri: 5,4fm. Flísalagt, bjart með glugga og góðum fataskáp. Forstofuherbergi: 12,2fm. parketi á gólfum og tvöfaldur skápur.Hjónaherbergi: 12,9fm. parket á gólfi og þrír tvöfaldir skápar. Barnaherbergi: 8fm. Parket á gólfi og tvöfaldur skápur.Baðherbergi:6,4fm. Flísalagt í hólf og gólf,nýleg innrétting, skápur, baðkar og sturta.Eldhús:11,7fm. Nýleg hvít innrétting og grár plastlagður eldhúsbekkur, stórt span helluborð, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, nýlegur háfur, lökkuð álplata á vegg fyrir aftan eldavél, borðkrókur þar sem útgengt er á svalir. Harðparket á gólfi.Stofa/borðstofa: 25,2fm. Björt og með fallegu útsýni, útgengt út á rúmgóðar suðursvalir. Harðparket á gólfi. Þvottahús og geymsla: 9,2fm. Flísalagt rými innan íbúðar með glugga og skolvaski. Skv. teikningu eru þessi rými aðskilin en búið er að opna á milli rýmanna þar sem gengið inn af gangi.Hér er gott tækifæri til þess að eignast rúmgóða og bjarta endaíbúð með sérinngangi í eftirsóttri staðsetningu í Áslandinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, alla þjónustu. Frábærar gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, eða Daði Runólfsson, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.