** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 74,0 m2, 2ja herbergja íbúð á 3.hæð í nýlegu lyftuhúsi við Bjarkarholt 2... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 ** Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 74,0 m2, 2ja herbergja íbúð á 3.hæð í nýlegu lyftuhúsi við Bjarkarholt 25 í miðbæ Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 74,0 m2, þar af íbúð 66,8 m2 og geymsla 7,2 m2. Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Svalir í vesturátt. Búið er að fá samþykki fyrir svalalokun. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp, fatahengi og harðparketi á gólfi. Eldhús er með fallegri innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gott vinnupláss.Stofa/borðstofa er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt. Búið er að fá samþykki fyrir svalalokun.Svefnherbergi er með fataskápum sem ná alveg til lofts og harðparketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni og handklæðaofn. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla er í kjallara. Er skráð 7,2 m2Eigninni fylgir hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 55.800.000,-Verð kr. 56.900.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.