VALBORG kynnir: Glæsilega bjarta útsýnisíbúð á annarri hæð að Bergþórugötu 3, samtals 74,6 fm. á besta stað í miðbæ Rvík. Sér bílastæði á baklóð hússins. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð á einstaklega smekklegan hátt þar sem Gunnar Páll Kristinsson arkitekt sá um alla hönnun. Björt og falleg s... Sýna meira
VALBORG kynnir: Glæsilega bjarta útsýnisíbúð á annarri hæð að Bergþórugötu 3, samtals 74,6 fm. á besta stað í miðbæ Rvík. Sér bílastæði á baklóð hússins. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð á einstaklega smekklegan hátt þar sem Gunnar Páll Kristinsson arkitekt sá um alla hönnun. Björt og falleg stofa,opið nýtt glæsilegt eldhús með eyju, dökkri innréttingu og steini í borðplötum. Vaxborið eikarparket á öllum gólfum nema baðherbergi. Flísalagt nýuppgert baðherbergi með þvottaaðstöðu. Fallegt útsýni að Esjunni og til sjávar. Nýtt baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Heillandi útsýnisíbúð.Íbúðin er á 2. hæð skráð 74,6 fm þar af er 9 fm geymsla á jarðhæð, nánar tiltekið eign merkt 02-02 fastanúmer 200-8127 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.. Nánari upplýsingar veita Maria Guðrún Sigurðardóttir viðsk. fræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 8201780, tölvupóstur .og Elvar Guðjónsson viðsk. fræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 8954000 tölvupóstur: Nánari lýsingForstofa: Rúmgóð með góðum fataskáp.Stofa/borðstofa : Björt og falleg með glæsilegu útsýni til norðurs.Eldhús: Opið vandað eldhús þar sem ekkert er til sparað. Innréttingar frá HTH úr svartbæsuðum eikarspón. Ljóst silestone er á borðum, hlið eyjunnar og gluggakistu. Helluborð, ofnar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél eru af vandaðri gerð frá Siemens. Skápapláss er mjög gott. Baðherbergið:Baðherbergið er einnig nýuppgert. Það er rúmgott flísalagt með glæsilegum gráyrjóttum steinflísum á gólfi og veggjum. Innrétting er svartbæsuð frá HTH. Rúmgóður sturtuklefi,handklæðaofn og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Bjart baðherbergi með tveimur gluggum.Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skáp. Úr svefnherbergi er útgengi á suðursvalir.Nýjar vandaðar innihurðir frá Birgisson, Ofnar og ofnalagnir voru endurnýjaðar á árinu.Geymsla: 9 fm á jarðhæðSameign:Gott þvottahús þar sem hver er með sína vél.HljólageymslaTvær sameiginlegar geymslur.Bílastæði:Eigninni fylgir stæði í sameign fyrir alla íbúa hússins, norðan megin við húsið. Hverfið: Útsýnið úr íbúðinni er mjög gott. Esjan skiptir um lit eftir árstíðunum og er alltaf jafn fögur. Örstutt er í Hallgrímskirkju og fjölbreytta verslun, þjónustu, menningu og skóla. Skemmtileg og veglega endurnýjuð íbúð á besta staðí miðborg Reykjavíkur með miklu útsýni og suður svölum, í húsi sem var byggt árið 1988. Ekta miðborgar íbúð fyrir vandláta.búðin er ný endurnýjuð, Gunnar Páll Kristinsson arkitekt hjá Rýma arkitektum hannaði endurbætur íbúðarinnar. Húsið: Bergþórugata 3 í Reykjavík er steinsteypt íbúðarhús byggt árið 1988, kjallari og þrjár hæðir. Í húsinu er 6 íbúðir, 2 á hverri hæð. Húsinu fylgia 6 bílastæði á lóðinni norðanmegin og eitt stæði á framlóð. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, tilseljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hlutafasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegumkaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.