KRISTÍN EINARS lgf. og DOMUSNOVA KYNNA: Fallega og vel skipulagða 4 herb. íbúð með rúmgóðum bílskúr við Barmahlíð 15.Íbúðin er á 2. hæð og skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi þar af eitt með útgengi á suður svalir, eldhús og baðherbergi.Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni.Samkv. HMS skipti... Sýna meira
KRISTÍN EINARS lgf. og DOMUSNOVA KYNNA: Fallega og vel skipulagða 4 herb. íbúð með rúmgóðum bílskúr við Barmahlíð 15.Íbúðin er á 2. hæð og skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi þar af eitt með útgengi á suður svalir, eldhús og baðherbergi.Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarsyni.Samkv. HMS skiptist eignin í 95,9 fm íbúð og 28 fm bílskúr. Samtals 123,9 fm.Eignin er staðsett í góðu og vinsælu hverfi í Híðunum.Frábær eign á frábærum stað.*Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað í húsinu á liðnum árum.*Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2012.*Skipt um rafmagnsrofa og -tengla 2012.*Eldhúsið allt endurnýjað 2012.*Suðurgluggar og gler í stofu og hjónaherbergi endurnýjaðir 2013 - miðjugluggi og svalahurð eru í skjóli, svo ekki var talin þörf á endurnýjun.*Norðurgluggar og vesturgluggi ásamt glerjum endurnýjaðir 2014. *Eldvarnarhurð í íbúð 2014.*Brunnur og skólplögn frá brunni og út í götu endurnýjuð 2016*Húsið múrviðgert og málað að utan 2017*Drenað 2017*Þakviðhald 2022: skorsteinn fjarlægður, negling járns yfirfarin og þak málað. Gluggar voru málaðir í leiðinni.*Ekki er vitað hvenær frárennslislagnirnar voru endurnýjaðar en vitneskja er um að plaströr liggja frá húsi út í brunn.Fasteignamat 2025 kr. 83.900.000. Nánari lýsing:Komið er inn í sameiginlegan inngang með risi. Teppalagður stigi. Fatahengi.Þaðan er komið inn á gang með innbyggðum skáp í enda gangsins. Eikarparket.Á vinstri hönd er gengið inn í afar rúmgott eldhús með tveimur gluggum. Eikarinnrétting með hvítum neðri skúffum. Eikarborðplata. Rúmgóður borðkrókur. Harðparket á gólfi.Þar við hliðina er flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtukari. Tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi. Flísalagt gólf.Við hlið baðherbergis er svefnherbergi með innbyggðum fataskáp. Parketgólfdúkur.Á móti svefnherberginu er rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. Parketgólfdúkur.Á hægri hönd á gangi er stofa auk svefnherbergis sem er með útgengi á suðursvalir. Eikarparket á gólfiStórir gluggar stofunni sem snúa í suður og vesturátt.Möguleiki er á að opna á milli stofu og svefnherbergis og stækka stofuna sem því nemur.Bílskúr: 28fm frístandandi steinsteyptur bílskúr með heitu og köldu vatni, vaskur. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr. Í kjallara er sameiginlegur kyndiklefi þar sem fyrsta og önnur hæð deila sama mæli.Frábær fjölskyldueign þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla, útivistarsvæði í Klambratúni,Öskjuhlíðinni og Nauthólsvík, Íþróttafélagið Val, og alla helstu þjónustu, verslanir og veitingahús miðborgarinnar.Nánari upplýsingar veitir:Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.