Miklaborg og Böddi kynna: Barmahlíð 15 – falleg og vel skipulögð 4ra herbergja fjölskylduíbúð með sérinngangi í góðu Sigvaldahúsi á frábærum stað í Hlíðunum.
Eignin er skráð 100,5 fm og þar af er 9,2 fm sérgeymsla innan íbúðar. Íbúðin er á neðstu hæð, með þremur svefnherbergjum, björtu alrými, rúmgóðri stofu og endurnýjuðu eldhúsi og baðherbergi.
Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa og stigi: Með slitsterku og vatnsþolnu teppi á gólfi.
Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu vinnu- og skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, ofn, keramikhelluborð og veggfastur háfur. Stæði er fyrir ísskáp.
Stofa og alrými: Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og stórir gluggar veita einstaklega góða birtu.
Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með nýlegum flísum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofni.
Geymsla og þvottaaðstaða: Rúmgóð 9,2 fm sérgeymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga. Aðstaða fyrir þvottavél og aukið geymslurými er undir stiga.
Sameiginleg geymsla er í kjallara með hitagrind og rafmagnstöflu. Hita- og rafmagnsreikningar eru aðskildir fyrir íbúðir hússins.
Helstu kostir:
Framkvæmdir við húsið 2016–2022:
Endurbætur innan íbúðar 2015–2023:
Virkilega falleg og vel skipulögð fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Stutt er í leik- og grunnskóla, menntaskóla og alla helstu þjónustu. Öskjuhlíð, Perlan og Nauthólsvík eru í næsta nágrenni og miðborg Reykjavíkur í þægilegu göngufæri.
Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu


















| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 30. september 2024 | 82.000.000 kr. |
| 22. janúar 2021 | 53.500.000 kr. |
| 28. september 2015 | 28.500.000 kr. |
| 21. október 2013 | 21.000.000 kr. |
0001 ![]() | 4 | 100,50 m² | 85.900.000 kr. 4. september 2026 | 82.000.000 kr. 30. september 2024 |
0301 | - | - | - | - - |
| - | - | - | 34.000.000 kr. 27. júlí 2007 |
| 4 | 123,90 m² | 89.800.000 kr. 20. júní 2024 | 90.000.000 kr. 21. ágúst 2024 |