Fasteignasalan TORG kynnir: LAUS VIÐ KAUPSAMNING! Vel nýtt 2ja herbergja íbúð á besta stað í miðbænum rétt við alla mögulega þjónustu. Íbúðin er á jarðhæð í fallegu húsi á horni Baldursgötu og Óðinsgötu (gengið inn frá Óðinsgötu). Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í ...
Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: LAUS VIÐ KAUPSAMNING! Vel nýtt 2ja herbergja íbúð á besta stað í miðbænum rétt við alla mögulega þjónustu. Íbúðin er á jarðhæð í fallegu húsi á horni Baldursgötu og Óðinsgötu (gengið inn frá Óðinsgötu). Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá Nánari lýsing: Íbúðin er með sérinngangi á jarðhæð og litlum garði fyrir framan inngang. Komið er inn í eldhús og þaðan inn í stofu, baðherbergi og svefnherbergi. Eldhús: Þegar komið er inn í íbúðina. Með ljósri innréttingu meðfram tveimur veggjum. Stofa: Með grófum hvítmáluðum vegg og rými fyrir lítið borðstofuborð. Svefnherbergi: Með glugga út í garð. Baðherbergi: Flísalagt að hluta með baðkari með upphengdri sturtu og lítilli innréttingu við vask. Tengi fyrir þvottavél.Viðhald: Fyrir um 10-15 árum var farið í mikið viðhald á húsinu. Þá var skólpið endurnýjað alveg út í götu, útveggir voru múrviðgerðir (aðeins ein skemmd í múr og því húsið sérlega vel byggt) og málað. Gangur í sameign - sem er friðaður, var málaður með sérstakri marmaramálningu og skipt um útidyrahurð í sameign.Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning. Fín lítil íbúð í miðbænum.Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 eða hjá Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.