**** HLUTDEILDARLÁN ****Landmark fasteignamiðlun kynnir í einkasölu Austurhóla 6 á Selfossi. ÍBÚÐ 201 - SÉRINNGANGUR OG ENDAÍBÚÐ AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING.Glæsileg ný fjögurra herbergja 111,3 fm íbúð á 2. hæð með sér inngangi af svölum.Íbúðin skiptist í anddyri, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, ... Sýna meira
**** HLUTDEILDARLÁN ****Landmark fasteignamiðlun kynnir í einkasölu Austurhóla 6 á Selfossi. ÍBÚÐ 201 - SÉRINNGANGUR OG ENDAÍBÚÐ AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING.Glæsileg ný fjögurra herbergja 111,3 fm íbúð á 2. hæð með sér inngangi af svölum.Íbúðin skiptist í anddyri, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, geymslu (innan íbúðar), baðherbergi og alrými með eldhúsi og stofu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum, sérsmíðuðum innréttingum frá HTH, vönduðum AEG eldhústækjum ásamt innbyggðum- ísskáp og uppþvottavél.Fjölbýlishúsið er staðsteypt, einagrað að utan og með vandaðri utanhússklæðningu úr báruáli og/eða sléttáli. Allir milliveggir eru steyptir eða hlaðnir.Lyfta er í húsinu. Möguleiki að koma fyrir hleðslustöðvum á bílastæði.Möguleiki að koma fyrir svalalokun. Afhending við kaupsamning.Smelltu hér til að skoða söluvef íbúðanna að Austurhólum 6Allar nánari upplýsingar veita: Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasalií félagi FF / sími 770-0309Láttu okkur selja fyrir þig. Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarVið Austurhóla 6 á Selfossi er Stofnhús ehf., fh. Austurhóla ehf. að reisa glæsilegt 40 íbúða fjölbýlishús á fimm hæðum. Íbúðirnar eru vel skipulagðar tveggja til fjögurra herbergja, 55 fm til 110 fm að stærð með geymslum og skilast allar fullbúnar með gólfefnum. Húsið stendur á góðri lóð við, með nægum bílstæðum. Stutt er í leik- og grunnskóla og öll helsta verslun og þjónusta er í nágrenninu á Selfossi.Húsið rís í nýju hverfi austast í bænum. Falleg náttúra er allt um kring með margvíslegum útivistarmöguleikum. Um byggingaraðilann: Stofnhús er framkvæmdaraðili sem sérhæfir sig í byggingu íbúðarhúsnæðis. Stofnhús er byggt á grunni aðila sem hafa verið lengi á markaðnum, þeim er annt um viðskiptavini sína og leggja metnað sinn í að heildarupplifun íbúðarkaupa sé jákvæð frá upphafi til enda. Til að ná þessum markmiðum leggur Stofnhús áherslu á góða stjórnun og tryggja að hönnun og framkvæmd uppfylli ströngustu gæðaviðmið. Stofnhús vandar til verka og kappkostar að allir samstarfsaðilar séu ábyrgir og með reynslu hver á sínu sviði. Þetta á við hönnuði, stjórnendur, verktaka, byrgja osfrv. Stofnhús leggur ríka áherslu á vandaða verkefnastýringu og nýtur til þess liðsinni JT verks ehf., sem veitir sérhæfða þjónustu á sviði framkvæmdar- og verkefnastjórnunar byggingaverkefna. Búa aðilar JT verks yfir verkfræðiþekkingu auk mikillar reynslu úr framkvæmdageiranum, enda hafa þeir gegn lykilstöðum í stjórnun og rekstri margra stórra verkefna í gegnum tíðina. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA