Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Asparfell 2, íbúð 502, 111 Reykjavík: Um er að ræða rúmgóða og bjarta 5. herbergja íbúð á 5. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu. Eignin er þó nokkuð endurnýjuð að innan. Birt stærð eignar er 111,9 fm. ... Sýna meira
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Asparfell 2, íbúð 502, 111 Reykjavík: Um er að ræða rúmgóða og bjarta 5. herbergja íbúð á 5. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi með lyftu. Eignin er þó nokkuð endurnýjuð að innan. Birt stærð eignar er 111,9 fm. þ.a. er íbúðarhluti 107,1 fm. og geymsla 4,8 fm.Stutt er í alla helstu þjónustu, s.s. leikskóla (í húsinu), grunnskóla, fjölbrautaskóla, íþróttafélög ÍR og Leikni, verslanir og stutt er í náttúruperluna Elliðaárdal o.fl.SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, geymslu innan íbúðar og geymslu í sameign á jarðhæð, 2 svalir (austur og suður). Sameiginlegt þvottahús og geymsla á hæð. Nánari lýsing eignar: Forstofa: Rúmgóð með nýjum hvítum fataskáp, flísar á gólfi. Stofa / borðstofa: Rúmgóð, parket á gólfi. Búið er að stækka hana með því að taka niður vegg inn í eitt svefnherbergi, auðvelt er að breyta þessu aftur til baka, útgengi út á austur svalir. Leyfi er fyrir því að byggja yfir svalirnar. Eldhús: Nýlega endurnýjað. Falleg hvít innrétting með svartri borðplötu, spanhelluborð, tvöfaldur ísskápur sem fylgir með, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og örbylgjuofn, borðkrókur, útgengi út á suðursvalir, hvítar flísar milli skápa, flísar á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgott með innfeldum fataskápum, parket á gólfi. Svefnherbergi 2: Gott parketlagt svefnherbergi. Svefnherbergi 3: Gott parketlagt svefnherbergi með hvítum fataskáp.Svefnherbergi 4 / stofa: Búið er að taka niður vegg og stækka stofuna, útgengi út á austur svalir, parket á gólfi. Baðherbergi: Endurnýjaða fyrir nokkrum árum. Með góðri innrétting og hvítum skáp, sturtuklefi, upphent salerni, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf. Gestasalerni: Endurnýjað nýlega. Góð innrétting og speglaskápur, upphent salerni, flísalagt í hólf og gólf. Geymslur: Geymsla er innan íbúðar (með skáp) og 4,8 fm geymsla í sameign á jarðhæð. Sameign / þvottahús: Snyrtilegur stigagangur. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús og geymsla.Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi:* Eldhús endurnýjað, ný eldhúsinnrétting og tæki.* Gestasalerni endurnýjað, innrétting, salerni og flísar á gólfi og veggjum. * Baðherbergi endurnýjað fyrir nokkrum árum. * Nýr fataskápur í forstofu. * Nýjar flísar á forstofu og eldhúsi. * Nýlegur skápur í baðherbergi. * Búið er að lagfæra húsið töluvert að utan þ.e. lagfæra þakið, húsið klætt að utan 2007 og skipta var um glugga og gler í íbúðinni að undanskildu hurð og glugga í eldhúsi. Stigagangur var málaður nýlega. Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 60.600.000. Falleg og rúmgóð eign í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi með lyftu. Eign sem vert er að skoða. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali í s. 893 3276 eða .Rúnar Þór Árnason, löggiltur fasteignasali í s. 775 5805 eða . ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.