BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS - Hlynur s. 698-2603, Glódís s. 659-0510, Ársæll s. 896-6076, Hrafn s. 845-9888Hraunhamar kynnir: Glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfiði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Innan ... Sýna meira
BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS - Hlynur s. 698-2603, Glódís s. 659-0510, Ársæll s. 896-6076, Hrafn s. 845-9888Hraunhamar kynnir: Glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfiði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum. Innan íbúðar er sér loftskiptakerfi sem mun uppfylla kröfur svansvottunar.Íbúð 501 er fjögurra herbergja íbúð, skráð 115 fermetrar með 2 geymslum merktum 0012 á geymslugangi og 0020 í bílakjallara. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara. Einnig er möguleiki á að leigja annað stæði í bílageymslu.Ath. myndir eru af sýningaríbúð og því aðeins til viðmiðunar. Sjá nánar um íbúðina hér. Sjá skilalýsingu hér. Einstök staðsetning við fallega og óspillta náttúru. Fallegt útsýni til suðurs og suð-vesturs. Aukin lofthæð 2,66 m.Húsið er klætt að utan með álklæðningu og einangrað að utan, og ál/tré gluggar. Stórir gluggar þar sem útsýnið fær að njóta sín.Gæludýrahald verður leyft í húsinu. Mögulegt verður að leigja bílastæði í lokaðri bílageymslu. 19 íbúðir eru í húsinu. 2ja, 3ja og 4ra herb. Stærð frá 60,6 fm til 129 fm. Verð er frá 56,4 - 96,9 millj. Áshamar 44 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins. Miðast það við að lágmarka orkunotkun með bættri loftræstingu. Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér. Afhending febrúar 2024Um er að ræða virkilega skemmtilega íbúð á fimmtu hæð með svölum í nálægð við fallega nátturu. Einstakt útsýni. Skipting eignarinnar: Forstofa, stofa, eldhús, þrjú góð herbergi, baðherbergi, þvottahús og 2 geymslur. Bílastæði í lokuðum bílakjallara. Nánari lýsing skv. teikningu:Forstofa með fataskápum.Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.Eldhús með smekklegri innréttingu frá parka og vönduðum eldunartækjum AEG. Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suðurs.Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.Þvottahús með flísum á gólfi.Tvær góðar sér geymslur í sameign. Áshamar 44 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. Í stigaganginum eru 19 íbúðir.Verkland er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi. Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Hraunhamri fasteignasölu. Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, Hrafn Valdísarson, löggiltur fasteignasali, s. 845-9888, Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s. 896-6076, Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningiHraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár ! – Hraunhamar.isSmelltu hér til að fá frítt söluverðmat.