SELD MEÐ FYRIRVARA.VALBORG FASTEIGNASALA KYNNIR 4RA HERBERGJA 136,3 FM ÚTSÝNISÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR.Arahólar 2, Reykjavík. Frábærlega vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Mjög snyrtileg sameign. Íbúðin er endaíbúð á hæðinni og skiptist í stofu, svalir með glerlokun, eldhús, hol... Sýna meira
SELD MEÐ FYRIRVARA.VALBORG FASTEIGNASALA KYNNIR 4RA HERBERGJA 136,3 FM ÚTSÝNISÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR.Arahólar 2, Reykjavík. Frábærlega vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Mjög snyrtileg sameign. Íbúðin er endaíbúð á hæðinni og skiptist í stofu, svalir með glerlokun, eldhús, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofu, geymslu innan íbúðar, geymslu í sameign og bílskúr. Frábært tækifæri til að innrétta glæsilega íbúð með stórbrotnu útsýni. Afhending við kaupsamning.NÁNARI LÝSING: Stofa er stór með parketi og útgengt á yfirbyggðar flísalagðar svalir sem eru ekki í fermetratölu íbúðarinnar. Stórglæsilegt útsýni til vesturs norður og austurs.Eldhús er með borðkrók og flísum á gólfi.Holið er með parketi og getur nýst fyrir sjónvarp.Hjónaherbergi er með dúk á gólfi og fataskápum.Barnaherbergin eru tvö og bæði með parketi. Annað herbergið er með fataskáp.Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél.Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er rennihurð í litla geymslu.Geymsla er í sameign.Bílskúr er með gluggum. Heitt og kalt vatn og rafmagn. Sjálfvirkur hurðaopnari og gönguhurð.Húsið virðist hafa fengið gott viðhald gegnum árin. Þakið var endurnýjað 2022. Í snyrtilegri sameign er sérgeymsla íbúðarinnar, hjóla- og vagnageymslu, þvottahús og þurrkherbergi. Rafdrifin opnun á útihurðum. Nýleg lyfta.Íbúðin er endaíbúð á hæðinni. Hún er vel staðsett og stutt er í alla helstu þjónustu. Yfirbyggðar svalir. Stórbrotið úsýni allt frá Bláfjöllum, yfir Reykjanesið, borgina, sundin og Esjuna.Eignin Arahólar 2 er skráð sem hér segir hjá HMS. Eign 204-9168, birt stærð 136.3 fm. Íbúð á hæð 104 fm, geymsla í sameign 5,6 fm og bílskúr 26,7 fm.Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 8965865, tölvupóstur .Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.