Landmark fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali kynna vel skipulagða fjögurra herbergja 102,8 fm íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi við Arahóla 2 í Reykjavík. Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbe... Sýna meira
Landmark fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali kynna vel skipulagða fjögurra herbergja 102,8 fm íbúð á annarri hæð í lyftuhúsi við Arahóla 2 í Reykjavík. Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign. Hol er rúmgott miðrými íbúðarinnar með fataskáp, flísar fremst annars parket á gólfi. Eldhús er með upprunalegri innréttingu, frístandandi eldavél með helluborði, gufugleypi og tengi fyrir Ísskáp. Borðkrókur er í eldhús, harðparket á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi. Barnaherbergi I er rúmgott með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi. Barnaherbergi II er í minna lagi, parket á gólfi. Baðherbergi er rúmgott og snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðkari með sturtu yfir, baðinnréttingu, línskáp. Inni á baði er tengi fyrir þvottavél, vinnuborð og vegghengdur skápur. Stofa og borðstofa er rúmgóð, þaðan er útgengi á yfirbyggðar svalir með svalalokun. Víðfemt útsýni er yfir borginni. Svalir eru yfirbyggðar með svalalokun, þar eru pallaflísar á svalagólfi sem smellt er saman. Ofn er til staðar á svölunum. Geymsla er staðsett á jarðhæð, rúmgóð með áföstum hillum.Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í sameign, þar eru vélar í sameign. Sameign er vel um gengin og snyrtileg. Fyrirhugað fasteignamat 2022: 40.800.000 kr. Allar nánari upplýsingar veita:Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali sími 823-2600Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali sími 823-2800Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA