Fasteignasalan TORG KYNNIR: Mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á 3ju hæð í fallegu fjölbýli sem hefur fengið gott viðhald síðustu ár. Íbúðin er skráð 74,5 fm og þar af er geymsla í sameign 6,3 fm. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, endurnýjað baðherbergi, endurnýjað eldhús að hluta og stofu ... Sýna meira
Fasteignasalan TORG KYNNIR: Mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á 3ju hæð í fallegu fjölbýli sem hefur fengið gott viðhald síðustu ár. Íbúðin er skráð 74,5 fm og þar af er geymsla í sameign 6,3 fm. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, endurnýjað baðherbergi, endurnýjað eldhús að hluta og stofu með stórum suður glugga og útgengi á suðvestur svalir. Sameiginlegt þvottahús og geymsla er í kjallara. Nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, nemi til löggildingar fasteignasala, s. 623-8889 og , og/eða Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og .NÁNARI LÝSING: Íbúðin er á þriðju hæð í snyrtilegri sameign með teppi. Komið er inn í forstofu með baðherbergi strax á hægri hönd ásamt barnaherbergi og eldhúsi. Á vinstri hönd er hjónaherbergi og stofa.Forstofa: Innbyggt fatahengi ásamt hillusamstæðu. Hurð hefur verið endurnýjuð í brunavarnarhurð og dyrasíminn endurnýjaður.Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með baðkari með upphengdri sturtu, vaskur og upphengt klósett. Baðherbergi var endurnýjað 2018. Barnaherberbergi: Með góðum opnum fataskáp og stórum glugga til norðurs.Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum glugga til suðurs og endurnýjuðum fataskáp.Eldhús: Stílhrein U-laga innrétting með helluborði, háfi, ofn í vinnuhæð og tvöfaldur "sveita" vaskur við glugga. Innréttingar og heimilistæki endurnýjuð að hluta til árið 2018. Barborð með barstólum er við enda eldhúss og fylgir með íbúðinni ásamt ísskápi.Stofa: Rúmgóð stofa með stórum gluggum til suðurs og útgengi á svalir til suðvesturs. Gólfefni: Gólfefni allrar íbúðar hefur verið endurnýjað og er fallegt harðparket en gólflista vantar. Flísar eru á baðherbergi.Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í sameign, ásamt stóru þurrkherbergi, þvottavél fylgir með.Geymsla: Í sameign er sérgeymsla í kjallara, 6,3 fm, einnig er stór sameiginleg geymsla fyrir eigendur, ásamt hjólageymslu.Húsið: Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár.Þakið var endurnýjað 2006-7.Fráveitulagnir endurnýjaðar í stétt fyrir framan hús, snjóbræðsluleiðslur í stétt svo ekki festi snjó og bílastæði malbikað 2014-15.Allir gluggar, svalahurðir og kjallarahurðir endurnýjaðar og einnig húsið múrviðgert og málað 2017-18.Stigagangur: Teppi var endurnýjað og skipt í brunavarnarhurðir á stigagangi 2008, einnig var stigagangur málaður árið 2020. Dyrasímakerfi stigagangs endurnýjað 2019.Virkilega björt og falleg þriggja herbergja íbúð miðsvæðis í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Unnur Svava, nemi til löggildingar fasteignasala, s. 623-8889 og og/eða Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og .Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald kr. 2.500.- kr. af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.