Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað að Álftamýri 40, 108 Reykjavík. Eignin er skráð skv. FMR 59,5 fm og skiptist í anddyri, rúmgóða stofu með borðstofuplássi, suðursvalir, svefnherbergi, eldhús m... Sýna meira
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað að Álftamýri 40, 108 Reykjavík. Eignin er skráð skv. FMR 59,5 fm og skiptist í anddyri, rúmgóða stofu með borðstofuplássi, suðursvalir, svefnherbergi, eldhús með borðstofuplássi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottaherbergi og hjóla- og vagnageymslu. Göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, verslanir og veitingahús. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ***Eignin getur verið laus fljótlega.***Samkvæmt seljanda telur hún að eftirfarandi framkvæmdir hafi verið gerðar:2014 - Allar skolplagnir og brunnar endurnýjaðir innan lóðar. Drenlagnir lagðar. Nýjar gangstéttar lagðar með snjóbræðslu auk þess sem innkeyrsla og bílaplön voru endurnýjuð og malbikuð.2017-2018 – Allir gluggar í blokkinni endurnýjaðir ásamt svalahurðum og hurðum í sameign. Einnig voru unnar múrviðgerðir, málun og þakviðgerðir.2018 baðherbergi mikið endurbætt ásamt því að unnið var í rafmagni og dyrasími endurnýjaður.2018 - Eldhúsinnrétting endurnýjuð.Eftir að núverandi eigandi flutti inn voru eftirfarandi framkvæmdir gerðar:2021: Íbúð heil spösluð og máluð af fagmanni. Borðplata í eldhúsi endurnýjuð og veggir flísalagðir af fagmanni. Nýr fataskápur í svefnherbergi. Nýir listar lagðir stofu. 2021 - Stigagangur var málaður.2023 - Teppi í stigagangi endurnýjuð.Nánari lýsing:Íbúðin er á annarri hæð í snyrtilegri sameign. Komið er inn í anddyri/hol með baðherbergi strax á vinstri hönd ásamt eldhúsi. Á hægri hönd er hjónaherbergi og stofa.Anddyri/hol: Innbyggt fatahengi og flísar á gólfi. Rýmið tengir saman öll rými eignarinnar. Hurð hefur verið endurnýjuð í brunavarnarhurð og dyrasíminn endurnýjaður.Eldhús: Flísalagt eldhús með hvítri innréttingu frá Danska framleiðandanum Blum. Gott skápapláss, innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, gufugleypir, helluborð, góður borðkrókur og gluggi með opnanlegu fagi.Stofa/borðstofa: Stofan og borðstofan eru rúmgóðar í björtu samliggjandi rými með harðparketi á gólfum. Úr stofu er útgengt á suðursvalir með útsýni í stóran sameiginlegan garð.Hjónaherbergi: Rúmgott með stórum glugga til suðurs og endurnýjuðum fataskáp og harðparket á gólfi.Baðherbergi: Mikið endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum. Innrétting með handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn, sturta með hertu gleri og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi með opnanlegu fagi.Geymsla: Á jarðhæð sameignar er rúmgóð sérgeymsla með glugga. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Einnig er stórt sameiginlegt þvottahús með sér tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og þurrkherbergi á jarðhæð sameignar.Lóð: Mjög stór sameiginlegur garður og lóð umliggja húsið.Virkilega falleg og skemmtileg íbúð á vinsælum stað þar sem göngufæri er í flesta þjónustu, eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og góðar almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson fasteignasali S: 844-6516 / netfang: Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er u.þ.b kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.