Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð við Álfhólsveg 63 í Kópavogi. Eignin er skráð 73,6 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús með þvottaaðstöðu. Íbúðin er á annari hæð með suður svölum. Allar nánari upplýsingar veitir Darr...
Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð við Álfhólsveg 63 í Kópavogi. Eignin er skráð 73,6 fm og skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús með þvottaaðstöðu. Íbúðin er á annari hæð með suður svölum. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: Nánari lýsing: Gengið er inn í flísalagða forstofu með góðum gluggum. Eldhúsið er parketlagt og með hvítum innréttingum sem voru sprautulakkaðar 2015. Borðplatan í eldhúsinu er úr eik en á milli borðplötu og skápa er litað gler. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn í innréttingu. Baðherbergið var allt tekið í gegn árið 2015 en það er flísalagt í hólf og gólf. Hjónaherbergið er rúmgott með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfum. Barnaherbergið er við hliðina á hjónaherberginu með parketi á gólfum. Stofan er björt og falleg með parketi á gólfum. Frá stofu er gengið út á svalir sem snúa til suðurs. Búið er að endurnýja eignina mikið en sem dæmi er búið að skipta um gólfefni, gera upp baðherbergið, skipta um borðplötu á eldhúsinnréttingu, sprautulakka eldhúsinnréttinguna og fl. Farið var í múrviðgerðir á húsinu 2022 og húsið málað að utan. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: