Lögheimili eignamiðlun kynnir 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, með rúmgóðum sólpalli. Eignin er samtals 91,5 fm. Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, Smáralind verslunar- og þjónustukjarna, kvikmyndahús, íþróttafélag, sundlaug o.fl. Eignin skipti... Sýna meira
Lögheimili eignamiðlun kynnir 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, með rúmgóðum sólpalli. Eignin er samtals 91,5 fm. Frábær staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, Smáralind verslunar- og þjónustukjarna, kvikmyndahús, íþróttafélag, sundlaug o.fl. Eignin skiptist í hol, stofu/borðstofu, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi og geymslu. Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, Nánari lýsing: Hol er með fataskáp. Stofa/borðstofa er opin inn í hol og eldhús og með útgengt á rúmgóðan sólpall sem snýr í vestur. Í eldhúsi, sem er opið inn í stofu/borðstofu, er innrétting með viðaráferð, flísum milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél og spanhelluborð. Í baðherbergi er innrétting með viðaráferð, baðkar með sturtustöng, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, og flísar upp veggi. Tvö herbergi með fataskáp. Parket er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi þar sem eru flísar. Sérgeymsla, ásamt sameiginlegri hjólageymslu, er í kjallara. Annað: Skv. fasteignayfirliti er íbúð 84,8 fm. og geymsla 6,7 fm., eða samtals 91,5 fm.Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.