Domusnova og Ingunn Björg kynna: Eign sem vert er að skoða ! Afar spennandi og rúmgóða 143,7 fm 4 herbergja endaíbúð á jarðhæð með timburverönd ásamt bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi við Álalind 4 í Kópavogi. Íbúðin er á jarðhæð að sunnanverðu en á annari hæð að norðanverðu, þar eru sta... Sýna meira
Domusnova og Ingunn Björg kynna: Eign sem vert er að skoða ! Afar spennandi og rúmgóða 143,7 fm 4 herbergja endaíbúð á jarðhæð með timburverönd ásamt bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi við Álalind 4 í Kópavogi. Íbúðin er á jarðhæð að sunnanverðu en á annari hæð að norðanverðu, þar eru staðsett tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi. Mjög vel skipulögð, björt og opin eign. Í alrými er stofa með stórum gluggum og opið eldhús. Útgengi er á timburverönd á sérafnotareit úr stofu. Inn af alrými eru þrjú góð svefnherbergi og rúmgott baðherbergi. Þvottaherbergi er innan íbúðar. Einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Um er að ræða fasteign sem skráð er alls 143,7 m2, þar af er rúmgóð geymsla í sameign.Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Lindahverfi Kópavogs. Stutt í skóla, leikskóla, Smáralind sem og aðra verslun og þjónustu.Allar innréttingar og fataskápar eru frá GKS. Gólfefni eru harðparket fyrir utan votrými sem eru flísalögð. Bókið skoðun á eða í síma 856 3566. Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Nánari lýsing: Forstofa: Rúmgóður fataskápur, harðparket á gólfi.Stofa: Björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi. Útgengt út á timburverönd frá stofu sem snýr til suðurs. Eldhús: Falleg grá og hvít innrétting, bakarofn og örbylguofn í vinnuhæð, span helluborð og háfur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi. Mjög stór og rúmgóður fataskápur sem nær upp í loft. Húsið stendur hærra á norðurhlið og er sú hlið á annari hæð. Barnaherbergi 1: Rúmgott harðparket á gólfi. Fataskápur sem nær upp í loft. Barnaherbergi 2: Rúmgott harðparket á gólfi. Fataskápur sem nær upp í loft. Baðherbergi: Falleg innrétting með skúffum undir handlaug, háskápur, baðkar með sturtuþili, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísalagt gólf og veggir að hluta. Gluggi með opnanlegu fagi.Þvottahús: Innan íbúðar með flísum á gólfi og fráleggsborði. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla: 11,6fm í sameign. Bílastæði : Merkt B21 í lokuðu bílastæðahúsi. Búið er að setja upp grunnkerfi fyrir hleðslu rafbíla.Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.