Sunna Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasli kynna góða eign í einkasölu við Akurhvarf 7 í Kópavogi, 2ja herbergja íbúð með flottu útsýni, suðursvölum og góðri aðkomu. **** Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvara sem rennur út 15.03.2024 ****Íbúðin getur verið laus fljótlega.Eigni... Sýna meira
Sunna Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasli kynna góða eign í einkasölu við Akurhvarf 7 í Kópavogi, 2ja herbergja íbúð með flottu útsýni, suðursvölum og góðri aðkomu. **** Eignin er seld með hefðbundnum fyrirvara sem rennur út 15.03.2024 ****Íbúðin getur verið laus fljótlega.Eignin er skráð sem hér segir hjá Fasteignskrá HMS: Fastanr. 227-3115, nánar tiltekið eign merkt 01-08, birt heildarstærð 77.8 fm., Þar af er íbúðin skráðir 71,1 fm og sérgeymsla í sameign merkt er skráð 6,7 fm. Suður svalir eru skráðar 6,3 fm. Nánari lýsing eignarinnar: Um er að ræða rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð í góðu lyftuhúsi við Akurhvarf 7, 203 Kópavogi. Íbúðin er á 1.hæð og skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, suður svalir, þvottahús innan íbúðar auk sérgeymslu í kjallara. Gengið er inn í húsið af fyrstu hæð og því er aðgengi mjög gott frá bílastæði og aðal inngangi.Nánari lýsing:Komið er inn í flísalagt anddyri. Í holi fyrir framan forstofu og stofu er góður fataskápur. Næst andyrinu er innangengt í rúmgott þvottahús sem nýtist einnig sem geymsla.Í opnu og björtu alrými er gott eldhús, borðstofa og setustofa. Stofan er björt og rúmgóð með parketi, út frá stofunni er gengið út á svalir til suðurs. Svalirnar eru 6,3 fm. og ekki inni í birtri fermetratölu snúa upp í opið, grænt svæði, útsýni til suð-austurs yfir Elliðavatnið og fallega fjallasýn.Eldhús með eikarinnréttingu og góðu vinnuplássi, tengt fyrir uppþvottavél. Eldhúseyja með ofni og helluborði snýr inn í stofuna með góðri tengingu við alrýmið. Svefnherbergi er mjög rúmgott, með parketi og góðu skápaplássi.Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf, snyrtileg innrétting. Baðkar og sturtuhaus.Sér þvottahús er innan íbúðarinnar, flísalagt með ágætri aðstöðu.Falleg gólfefni eru á íbúðinni, náttúruflísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi, vandað parket á stofu, eldhúsi, holi og svefnherbergi.Sameign er afar snyrtileg, þar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæðinni auk þess sem þar er sérgeymsla íbúðarinnar ( 6,7 fm).Góð aðkoma er að húsinu, gengið er inn um aðal inngang hússins á 1. hæð frá bílastæði.Garðurinn er vel hirtur og fallegur með leiksvæði - gott pláss er umhverfis húsið.Um er að ræða virkilega góða eign á vinsælum stað í Kópavogi. Stutt í leikskóla og alla helstu þjónustu ásamt fallegri náttúru. Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali, í síma 7772882, tölvupóstur Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.