Eignamiðlun kynnir:
**Bókið skoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@eignamidlun.is**Vel skipulagt 259m² einbýlishús á tveimur hæðum. Rúmgóð herbergi, stofur og eldhús. Garður er stór og gróinn. Aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð hússins sem er í úleigu. Gott útsýni er frá stofu. Húsið getur verið laust við kaupsamning.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 259,2m², þar af er bílskúr skráður 34,4m².
Húsið skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú rúmgóð herbergi og baðherbergi á efri hæð. Á neðri hæð er fjölskyldurými, herbergi og tveggja herbergja íbúð með sér inngangi.
Nánari lýsing:Komið inn í rúmgóða flísalagað
forstofu með fatahengi. Frá forstofu er komið inn í teppalagt
hol sem tengir saman stofur, eldhús og svefnherbergisgang.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með teppalögðum gólfum. Frá stofu er gengið út á
rúmgóðar svalir til suðvesturs.
Eldhús er einkar rúmgott og með góðum borðkrók, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppþvottavél, korkur á gólfi eldhúss.
Svefnherbergi á efri hæð eru þrjú talsins og öll mjög rúmgóð. Öll eru þau með fataskápum, parket á gólfum herbergja.
Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, vegghengdu salerni og eldri innréttingu, flísar á gólfum og upp á hluta veggja.
Gengið eru niður fallegan stiga á neðri hæð.
Á neðri hæð er rúmgott teppalagt
fjölskyldurými. Á neðri hæð er einnig gott
herbergi og lítil
geymsla. Gengið er niður með húsinu til að komast að
tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Hún skiptist í sofu, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Einnig hægt að koma að aukaíbúðinni frá Seljaskógum.
Óútgrafið pláss býður upp á stækkunarmöguleika. Nýbúið að endurnýja alla ofna.Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook