Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Glæsilegt einbýlishús með tveimur aukaíbúðum með sér inngangi, sem hægt er að leigja út.
Eignin stendur á 610fm eignalóð sem er skráð á hjá HMS 480 fm og liggur fyrir samþykki Reykjanesbæjar fyrir 94 fm byggingu á baklóð fasteignarinnar.Nánari lýsing: Frábær og vel uppgert hús á góðum stað í miðbæ Keflavíkur sem hefur hlotið viðurkenningar í tvígang fyrir breytingar, hönnun og útlit.Komið inn á
forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Herbergi er inn af forstofu með parketi á gólfi.
Gesta salerni með innréttingu, klósetti og flísum á gólfi.
Eldhús er með innréttingum, sérsmíðaðar í anda hússins, bökunarofn, gas eldavél, vifta og ísskáp. Inn af eldhúsi er mjög
stór og björt stofa/borðstofa með parketi(massíf eik) á gólfi, og arni(er ekki virkur í dag), úr stofu er gengið niður hringstiga í
sjónvarps og tónlistarherbergi með flísum á gólfi,
stórt baðherbergi með hornbaðkari sturtu, gufubaði, innréttingu, klósetti, skolskál og flísum á gólfi. Gólfhiti er á allri neðri hæðinni.
Þvottaherbergi er rúmgott með skápum og útgengi út.
Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi, flísum á gólfi og útgengi út á
verönd og þaðan út í garð. Veröndin er með sérsmíðuðum heitapotti, úti eldhús með arni, góðum borðkrók og fallegum sérsmíðuðum fossi niður vegginn.
Veröndin er niðurgrafin mjög glæsileg og skjólgóð. Bílskúrnum var breytt í
tvær íbúðir, önnur er
stúdíóíbúð og hin
tveggja herbergja með eldhúsi, mjög snyrtilegt og vel gert í anda hússins,
baðherbergi eru inn af báðum íbúðunum og með sturtu.
Garðurinn er með sér inngangi og eru
þrjár verandir í garðinum, mjög snyrtilegar og í anda hússins
. Í garðinum stendur hús sem notað er sem geymsla.
Húsið er allt hið vandaðasta og fallega hannað og úr góðum efnum. Sér smíðað grindverk og hlið, eldhús, skápar, inngangur í garðinn og fl.
Frábær og vönduð eign sem bíður uppá marga möguleika, er í hjarta Keflavíkur, tvær leigueignir, hægt að stækka eignina.
Falleg eign sem vert er að skoða.
Bókaðu skoðun.
Alla nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 eða beggi@fasteignasalan.is