Arion banki

Frá samanburði: Sparnaðarreikningar

Hvað eru Arion fríðindi?

Arion fríðindi er fríðindakerfi sem skiptist í nokkur stig. Því fleiri þjónustuþætti sem viðskiptavinir nýta, því ofar færast þeir í kerfinu og njóta betri kjara og fleiri fríðinda.

  • Arion framtíð
  • Stig 1
  • Stig 2
  • Stig 3
  • Premía
Arion

Kort

Allt að 25 % endurgreiðsla árgjalds

Afslátturinn af árgjaldi kreditkorts hækkar með hverju fríðindastigi. Bláa kortið er frítt fyrir 23 ára eða yngri.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Afsláttur af árgjaldi kreditkorts¹Bláa kortið frítt10 %15 %20 %25 %
Afsláttur af árgjaldi debetkorts100 %NeiNeiNeiNei
Fríar debetkortafærslurAlltaf fríar100 á ári200 á áriAlltaf fríarAlltaf fríar

Á stigi 1–3 gildir afslátturinn fyrir öll kreditkort utan Premíu kreditkortsins.

Sparnaður

Allt að +0,20 % ofan á sparnaðarvexti

Fríðindareikningur er í boði frá stigi 1 og greiðir vexti vikulega. Á stigi 3 og í Premíu fást aukavextir á „Vöxtur 30 dagar“ og „Vöxtur verðtryggður“.

Þú komst hingað
FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Fríðindareikningur (vextir vikulega)NeiJáJáJáJá
Hærri vextir á sparnaði²NeiNeiNei+0,10 %+0,20 %
Hærri vextir á debetkortumNeiNeiNeiNei+2,10 %
Lægri yfirdráttarvextir á debetkortiNeiNeiNeiNei-2 %

Lán

Íbúða- og bílalán lyfta þér upp um stig

Lán hjá Arion er einn af sex þjónustuþáttum sem ákvarða fríðindastigið þitt. Lánin sjálf bera ekki sérstakan fríðindaafslátt, heldur koma kjörin fram í öðrum flokkum.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Telur sem þjónustuþátturJáJáJáJáJá

Vextir húsnæðislána Arion eru óháðir fríðindastigi. Sjá samanburð húsnæðislána fyrir kjörin sjálf.

Lífeyrir

Viðbótarlífeyrissparnaður lyftir þér upp um stig

Viðbótarlífeyrissparnaður hjá Arion eða Frjálsa er einn af sex þjónustuþáttum sem ákvarða fríðindastigið þitt. Inneignin telur líka í fjárhagsstöðu, sem miðað er við á stigi 3 og í Premíu. Séreignin sjálf ber ekki sérstakan fríðindaafslátt, heldur koma kjörin fram í öðrum flokkum.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Telur sem þjónustuþátturJáJáJáJáJá

Ávöxtun séreignardeilda Arion er óháð fríðindastigi. Sjá samanburð séreignasjóða fyrir kjörin sjálf.

Verðbréf

Allt að 50 % afsláttur af hlutabréfaviðskiptum

Afsláttur af þóknun í appi og netbanka. Premía opnar auk þess aðgang að sjóðum sem eru lokaðir öðrum stigum.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Afsláttur af hlutabréfaviðskiptum í appi og netbankaNei25 %25 %25 %50 %
Aðgangur að sjóðum PremíuNeiNeiNeiNeiJá
Áskrift í sjóðum Stefnis telur sem þjónustuþátturJáJáJáJáJá

Tryggingar

Allt að 7 % endurgreiðsla tryggingagjalda

Heimilisvernd hjá Verði er einn af sex þjónustuþáttum sem ákvarða fríðindastigið þitt. Með Heimilisvernd færðu líka endurgreiðslu af tryggingum hjá Verði og hún hækkar með stigi.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Endurgreiðsla af tryggingum hjá VerðiNei5 %5 %6 %7 %
Premíu kjör af tryggingum hjá VerðiNeiNeiNeiNeiJá
Arion framtíðarkjör af heilsupakka VarðarJáNeiNeiNeiNei

Þjónusta

Forgangur og sjálfsafgreiðsla í Premíu

Efsta stigið fær forgang í þjónustuver og heimild til að afgreiða stærri aðgerðir sjálf í appinu.

FríðindiArion framtíðStig 1Stig 2Stig 3Premía
Sjálfsafgreiðsluheimild í appiNeiNeiNeiNei7 milljónir kr.
Forgangur í þjónustuverNeiNeiNeiNeiJá
EinkaklúbburinnJáJáJáJáJá

Þjónustuþættir

Fríðindakerfið byggir á sex þjónustuþáttum. Því fleiri þætti sem þú ert með, því ofar kemstu.

  • Virk velta
  • Virkt kort
  • Íbúðalán eða bílalán hjá Arion
  • Viðbótarlífeyrissparnaður Arion eða Frjálsa
  • Heimilisvernd hjá Verði
  • Áskrift í sjóðum Stefnis

Stig fyrir stig

Arion framtíð
23 ára eða yngri
Stig 1
2 þjónustur af sex
Stig 2
4 þjónustur af sex
Stig 3
Yfir 10 m.kr. í fjárhagsstöðu, eða eigandi fyrirtækis í viðskiptum, ásamt 3 virkum þjónustum
Premía
Yfir 40 m.kr. í fjárhagsstöðu ásamt 3 virkum þjónustum

¹ Fullt árgjald er greitt fyrst og endurgreitt á reikninginn þinn mánuði eftir endurnýjun. Afsláttur er aðeins veittur af fullu árgjaldi kreditkorta.

² Aukavextir gilda á „Vöxtur 30 dagar“ og „Vöxtur verðtryggður“.

Nánar um fríðindastigin
Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2018-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram